Unnar vann fyrsta stigamótið í snóker
Sigurvegararnir, Þorsteinn og Unnar.

Fyrsta stigamót vetrarins í snóker fór fram í Vestmannaeyjum í gær en þetta er í fyrsta sinn í áratugi sem stigamót er haldið utan höfuðborgarsvæðisins. Unnar Bragason mætti Eyjamanninum Þorsteini Hallgrímssyni í úrslitaleik og hafði betur 2-1. Unnar byrjaði betur í leiknum og komst yfir með stuði upp á 69 stig. En Þorsteinn vann sig inn í úrslitaleikinn með því að vinna næsta ramma. Oddaramminn var svo æsispennandi og réðust úrslitin ekki fyrr en á lokakúlunum. Þess má geta að hæsta stuð mótsins átti Ásgeir Jón Guðbjartsson, 83 stig.

Næst á dagskrá hjá Billiardssambandi Íslands er fyrsta stigamótið í pool en keppt verður í 8-ball. Mótið fer fram um næstu helgi á Billiardbarnum mótsgjöld í fyrstu mót vetrarins er aðeins ein króna.

Aðstaða til snókeriðkunar er mjög góð í Vestrmannaeyjum.

 

Nýjustu fréttir

Níu lið frá ÍBV tóku þátt í Símamótinu
Heimsfaraldur á fjögurra ára fresti
Eldur í Maggý VE 108 – Slökkvistarf gekk greiðlega
Vantar pláss á hafnarsvæðinu – kanna framtíð Blátinds
Andri og Elís Þór áfram í milliriðil með u-20
Eyjamenn töpuðu gegn KR á Meistaravöllum
Sóley og Örlygur Helgi eru klúbbmeistarar GV 2026
Rannsóknum fyrir Eyjagöng miðar vel áfram
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.