Ræddar voru forsendur fjárhagsáætlunar Vestmannaeyjabæjar fyrir árið 2025 á síðasta fundi bæjarráðs, auk tímalínu vinnu við áætlunargerðina. Framundan eru vinnufundir í fagráðum og bæjarstjórn. Framkvæmdastjórar skila áætlunum um rekstur og viðhald til fjármálastjóra. Vinna stendur yfir við undirbúning áætlunarinnar.
Í forsendum fjárhagsáætlunar er lagt upp með að útsvarsprósenta verði óbreytt á milli ára eða 14,91% og að framlög úr Jöfnunarsjóði sveitarfélaga verði í samræmi við áætlun sjóðsins, sem ætti að liggja fyrir í október og endanlega fyrir fyrri umræðu um fjárhagsáætlun í bæjarstjórn.
Vestmannaeyjabær hefur verið að skoða áhrif lækkunar á álagningaprósentum á tekjur bæjarsjóðs af fasteignagjöldum. Lögð voru fyrir drög að forsendum til ákvörðunartöku álagningarhlutfalls á fasteignaskatti.
Bæjarráð mun taka afstöðu til álagningarprósentu fasteignagjalda fyrir árið 2025 á næsta fundi. Horft er til þess að aðrar tekjur málaflokka, svo sem vegna gjaldskráa bæjarins, hækki í samræmi við vísitölu neysluverðs, nema þær gjaldskrár sem tengjast forsendum kjarasamninga og samþykktar voru á 3218. fundi bæjarráðs þann 3. júlí 2024. Þær gjaldskrár hækka um 3,5%
Stuðst verður við sérstaka launaáætlun við undirbúning fjárhagsáætlunarinnar, sem tekur mið af mannaflaþörf á stofnunum bæjarins og útreikningi á áhrifum kjarasamninga. Með því eykst nákvæmni við áætlun launa. Gert er ráð fyrir að aðrir rekstrarliðir hækki almennt um 3,5%. Í því felst töluverð hagræðing á kostnaðarhlið fjárhagsáætlunar, þar sem verðlagsþróun hefur verið umtalsvert hærri.
Bæjarráð samþykkti samhljóða forsendur fjárhagsáætlunar og að halda áfram undirbúningi skv. þeirri tímalínu sem kynnt var bæjarráði. Bæjarráð samþykkir að gjaldskrár bæjarins hækki í samræmi við vísitölu neysluverðs, nema þær gjaldskrár sem tengjast forsendum kjarasamninga og samþykktar voru á 3218. fundi bæjarráðs þann 3. júlí 2024. Þær gjaldskrár hækka um 3,5%, segir í bókun ráðsins.
Til að geta skoðað nánari upplýsingar þarftu að vera áskrifandi og vera skráður inn.

Skráðu þig á fáðu nýjustu tilkynningar fyrst