Upphafs minnst á morgun - Fólk hvatt til að fjölmenna

Vestmannaeyingar minnast þess á morgun, 23. janúar þegar fimmtíu ár verða frá því gos hófst á Heimaey. Gosið hófst rétt fyrir klukkan tvö um nóttina og um morguninn höfðu bátar og aðkomubátar sem voru í höfn í Eyjum flutt hátt í 5000 íbúa af um 5300 til lands. Mesta björgun Íslandssögunnar. Áður en gosi lauk þann þriðja júlí sama ár hafði þriðjungur bæjarins grafist undir gjósku og hraun og framundan var hreinsun og uppbygging. Keyrð áfram af mikilli ástríðu og krafti sem hefur skilað þeim öfluga bæ sem Vestmannaeyjar eru.

Eins og áður á þessum tímamótum er upphaf gossins minnst með lágstemmdum hætti. Dagskráin hefst í Eldheimum kl. 01:45, nákvæmlega fimmtíu árum frá upphafi gossins þegar nemendur tíunda bekkjar lesa upp valið efni úr RÚV sem flutt var fyrsta sólarhringinn eftir gosupphaf. Lestrinum er streymt.

Á hádegi er hátíðarfundur í bæjarstjórn þar sem forseti Íslands, Guðni Th. Jóhannesson verður meðal gesta.

Klukkan 16.00 verður opnuð vinnustofa um handgerðar veifur á Bókasafninu. Hálftíma seinna verða nemendur í leikskólum og Grunnskólanum með sýningu í Sagnheimum.

Kl. 18.30 er safnast saman við Landakirkju og kl. 19:00 er lagt af stað að Eldheimum þar sem verður hátíðarviðburður. Þar flytja forseti Íslands Guðni Th. Jóhannesson, Katrín Jakobsdóttir forsætisráðherra og Páll Magnússon forseti bæjarstjórnar ávörp. Helga Bryndís píanóleikari og Silja Elsabet söngkona koma líka fram.

Bæjarbúar og gestir eru beðnir um að fjölmenna og minnast með því þessa einstaka viðburðar í sögu Vestmannaeyja, Íslands og heimsins alls.

Mynd Svavar Steingrímsson.

Nýjustu fréttir

„Vestmannaeyjar eru til fyrirmyndar“
Hljómey og Vestmannaeyjabær framlengja samstarfið
Loðnuráðgjöf lækkar úr 358 þúsund tonnum í tæp 106 þúsund
Óvenjudjúp lægð í spákortum – gul viðvörun á Suðurlandi
Þrjár uppsagnir hjá Vestmannaeyjabæ úrskurðaðar ólögmætar
Skráning hafin fyrir hrekkjavökuna
Laxey meðal þátttakenda á Lagarlífi í Hörpu
Leggja til óbreytt útsvar á næsta ári
viðburðir
Atvinna
13. október 2026
17:15
Íbúaþing um atvinnustefnu í Eldheimum
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.