Uppnám í nýja bæjarmálafélaginu
Hið nýja bæjarmálafélag í Vestmannaeyjum, Fyrir Heimaey, sem stofnað var að hluta til vegna óánægju nokkurra Sjálfstæðismanna út í flokkinn fyrir að halda ekki prófkjör fyrir komandi sveitastjórnarkosningar, er nú í uppnámi, aðeins nokkrum dögum eftir stofnun þess, segir á vefsíðu Eyjunnar.
.
Elís Jónsson, sem sagður er hugmyndafræðingur hins nýja framboðs, er sagður óánægður með að hafa verið aðeins boðið 4. sætið á lista af uppstillingarnefndar hins nýja framboðs og hyggst ekki taka því boði. Hann hugðist gefa kost á sér í prófkjöri Sjálfstæðisflokksins í janúar, en fékk aldrei tækifæri til.
Íris Róbertsdóttir mun leiða listann, en hún er fyrrum varaþingmaður Sjálfstæðisflokksins og varð við áskorun heimamanna um að leiða hinn nýja lista eftir að efnt var til undirskriftarsöfnunar þess efnis. Hún var ósátt við hlutskipti sitt þegar henni var boðið þriðja sæti á lista Sjálfstæðisflokksins sem þó má telja öruggt sæti bæjarfulltrúa.
�?á herma heimildir Eyjunnar að hluti uppstillingarnefndar stjórnmálaaflsins Fyrir Heimaey hafi sagt sig frá störfum, en það eru sagðir stuðningsmenn Elísar.
Leó Snær Sveinsson, formaður hins nýja stjórnmálaafls í Vestmannaeyjum, vildi ekki staðfesta meinta óánægju:
�??Menn eru bara að stilla saman strengi,�?� sagði hann.
Hvorki náðist í Elís né Írisi við vinnslu fréttarinnar.

Nýjustu fréttir

Jafntefli hjá Heimi og Írum gegn Ísrael
Fimm ferðir til Landeyjahafnar á mánudag – dýpkun að hefjast
Erlingur stýrði Minden til sigurs í sínum fyrsta leik
Lærdómur liðinnar viku
Herjólfur siglir eina ferð til Landeyjahafnar síðdegis
ÍBV tapaði stórt gegn FH í Kaplakrika
Vilja öflugri dráttarbát og aðkomu ríkisins að fjármögnun
Eyjafólk í Landsleikunum á RÚV
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.