Uppskrift af jólamatnum
Guðrún Hallgrímsdóttir matvælaverkfræðingur hélt skemmtilegt hádegiserindi í Sagnheimum sl. fimmtudag. Benti hún m.a. á ýmsar matarholur sem leynast í nágrenni okkar, t.d. hvernig útbúa má girnilegt snakk á auðveldan hátt úr blöðruþangi. Ýmsar fleiri uppskriftir var hún með í pokahorninu, t.d. úr mismunandi gerðum þangs, fjörugrösum, sölvum og skeldýrum.
Uppskriftirnar má nálgast í afgreiðslu Sagnheima.
I lok erindisins kom Guðrún með uppskrift af jólasaltfiskrétti frá Suður – Frakklandi. Hvernig væri að breyta einu sinni til og bjóða upp á einn slíkan?
Uppskriftina má sjá hér að neðan:
Jólasaltfiskréttur frá Suður-Frakklandi
1 kg saltfiskflök
250 ml rjómi
50 ml ólívuolía
150 g hvítlaukur
salt og pipar
6 blöð af hvönn eða njóla eða 6 pönnukökur.
Hitið 2/3 af olíunni í potti, setjið fiskinn beinhreinsaðan í litlum bitum út í og hreyfið stöðugt með sleif. �?egar fiskurinn er orðinn vel brúnaður er afganginum af olíunni og rjómanum bætt útí, hitinn lækkaður og hrært vel í þar til maukið er orðið fallega hvítt og líkist kartöflustöppu. Merjið hvítlaukinn og hrærið saman við, saltið og piprið að smekk. Setjið fiskstöppuna á blöðin (sem áður hefur verið dýft í sjóðandi vatn í 2-3 mín) eða á pönnukökurnar og brjótið saman eins og umslag. Berið með þessu kartöflustöppu og olivíuolíu.
sagnheimar.is

Nýjustu fréttir

Framkvæmdir við innisundlaugina langt fram úr áætlun
Börnin eru ekki vandamálið
Magnús Dagur Jónatansson gengur til liðs við ÍBV
Kvennaliðið í góðri stöðu fyrir lokasprettinn
HSU segir engan læknaskort í Vestmannaeyjum
Fjárlagafrumvarpið 2027: Hvað er ætlað til Vestmannaeyja?
Andrea, Sandra og Díana í landsliðshópi Arnars
Látum rannsóknirnar vísa okkur veginn
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.