Úrgangsmál og meðferð úrgangs á Suðurlandi

Síðastliðið haust voru haldnir samráðsfundir um umhverfis- og auðlindamál víðsvegar um Suðurlandið þar sem úrgangsmál voru í brennidepli. Úrgangsmál tekur almennt til sorpmála og meðhöndlun sorps. Í dag gera íbúar og fyrirtæki kröfu um að geta flokkað meira og samræmt, en aukin vitund er um úrgangsmál og þau verðmæti sem liggja í úrgangi almennt.

Í kjölfar samráðsfundanna var samþykkt á ársfundi Samtaka sunnlenskra sveitarfélaga (SASS) að ráðast í verkefnið Úrgangsmál og meðferð úrgangs á Suðurlandi. Verkefnið er áhersluverkefni á vegum Sóknaráætlunar Suðurlands og hefur Elísabet Björney Lárusdóttir umhverfisfræðingur verið ráðin sem verkefnastjóri með sérfræðiþekkingu en verkefnið er á byrjunarreit.

Fólk er hvatt til að kynna sér umhverfismál og taka þátt á www.umhverfissudurland.is því saman erum við Sunnlendingar sterkari og umhverfisvænni.

Nýjustu fréttir

Myndband: Ný íbúðablokk tekur á sig mynd við Áshamar
Sjö sóttu um – sex umsóknir standa eftir
Evrópa er meira en Evrópusambandið
Suðurlandi allt
Tvö afmælismót Taflfélagsins um helgina
Kostnaður við NSL-4 stefnir í 3,1 milljarð – umfang tjónsins enn óljóst
Metþátttöku í Sumarlestri fagnað með lokahófi
Snýr aftur til Eyja með penslana í farteskinu
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.