Í kvöld, klukkan 19.30 leikur karlalið ÍBV úrslitaleik um 2. sætið í 1. deild Íslandsmótsins í handbolta þegar liðið sækir Aftureldingu heim. Annað sætið er mikilvægt því það gefur heimaleikjarétt í þriðja leik í undanúrslitunum ef til þess kemur. Ekkert nema sigur í kvöld heldur voninni lifandi hjá ÍBV enda munar tveimur stigum á ÍBV og Selfossi, sem er í öðru sæti. Forráðamenn ÍBV hvetja Eyjamenn til að drífa sig á völlinn í kvöld og styðja við sitt lið.