Útboð á dýpkun Landeyjarhafnar næstu þrjú ár

Yfirlýsing Ferðamálasamtaka Vestmannaeyja vegna útboðs á dýpkun Landeyjarhafnar næstu þrjú ár.

Nú hefur verið boðið út af Vegagerðinni, dýpkun Landeyjahafnar 2019-2021. Dýpkun hafnarinnar er mikið hagsmunamál fyrir ferðaþjónustuna sem ogsamfélagið allt í Vestmannaeyjum.

Ferðamálasamtök Vestmannaeyja leggja ríka áherslu á að ekki verði eingöngu litið til tilboðsverðs, heldur ráði reynsla og geta til verksins vali á samstarfsfyrirtæki.

Ferðamálasamtökin benda á þá staðreynd að fyrirtækið sem annast hefur dýpkun Landeyjahafnar sl. ár hefur haft til þess nauðsynlega reynslu og búnað. Eftir að það fyrirtæki tók við verkinu fór að ganga mun betur að halda höfninni opinni.

Þessi þáttur er mjög mikilvægur enda takmarkið að halda höfninni opinni allt árið. Lykilatriði er að dýpkun gangi hratt og vel fyrir sig svo hægt sé að opna höfnina á sem skemmstum tíma t.d. eftir stórveður.

F.h. ferðamálasamtaka Vestmannaeyja

Berglind Sigmarsdóttir

Nýjustu fréttir

ÍBV og Þór jöfn að stigum fyrir leik kvöldsins
Snorri Steinn velur landsliðshópinn fyrir undankeppni EM – Elliði Snær með
Breki VE tekur þátt í haustralli Hafró
Gul viðvörun fyrir allt landið á sunnudag
Áhyggjur af fjármögnun Herjólfs og Landeyjahafnar
Boða átak vegna gáma og númerslausra bíla
Tvær ferðir til Landeyjahafnar fyrir hádegi
Eyjakonur vilja styrkja stöðu sína í þriðja sæti
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.