Eyjatónleikar verða haldnir í Eldborgarsal Hörpu laugaradagskvöldið 22.janúar næstkomandi. Fjöldi frábærra listamanna koma þá saman og leika öll yndislegu Eyjalögin. Það er löngu kominn tími á að við fáum tækifæri á að rifja upp öll uppáhalds Eyjalögin, syngja með, upplifa sanna Eyjastemningu, koma saman og gleðjast.
Við höfum alltaf leitast við að blanda saman landsþekktu listafólki og listafólki úr Eyjum. Á þessum 10 árum er fjöldi listamanna kominn langt á annað hundraðið. Nú fáum við til liðs við okkur Magna Ásgeirs, Jóhönnu Guðrúnu, Kristján Kristjánsson (KK), Hreim Örn Heimisson höfund Þjóðhátíðarlagsins í ár, Magnús Kjartan Eyjólfsson brekkusöngvara 2021 og Eyjafólkið Rúnar Kristinn Rúnarsson (Vöggssonar), Söru Renee og Unu Þorvaldsdóttur.
Einvalalið er í hljómsveitinni undir styrkri stjórn Þóris Úlfarssonar sem tekur aftur við hljómsveitarstjórninni og leikur á hljómborð. Sveitin er að öðru leiti skipuð nánast sömu aðilum og mörg undanfarin ár en þeir eru Birgir Nielsen Þórsson á trommur, Eiður Arnarsson á bassa, Jón Elfar Hafsteinsson á gítar, Matthías Stefánsson á gítar og fiðlu, Kjartan Valdemarsson á hljómborð og harmonikku, Ari Bragi Kárason á trompet og Sigurður Flosason á saxafón, flautur og slagverk og Kristján Gíslason og Alma Rut Kristjánsdóttir sjá um raddir.
Að venju verða þarna flutt mörg af bestu og yndislegustu lögum Eyjanna og svo notum við tímann vel, mætum snemma, gefum okkur góðan tíma í hléi og nýtum tímann eftir tónleikanna, því þetta er jú eitt allra stærsta og glæsilegasta árgangs-, ættar- og vinamót veraldar.
Miðasala hefst föstudaginn 8.október klukkan 12 á hádegi á harpa.is og tix.is og í miðasölu Hörpu í síma 528-5050.
Allar frekari upplýsingar veitir undirritaður – Fyrir hönd Stóra sviðsins ehf
Bjarni Ólafur – gsm 896-6818
Landfylling við Eiði: Samið við Þjótanda um fyrstu áfanga
Bilun í Herjólfi – sérfræðingur kallaður til frá Noregi
Spurt og svarað: Ármann Halldór frá Sjálfstæðisflokknum
Vinnslustöðin snýr vörn í sókn á krefjandi ári
Spurt og svarað: Jessý Friðbjarnardóttir frá Eyjalistanum
Bilun í Herjólfi veldur lengri siglingatímaHvað er sjóveiki?
Sjóveiki er misræmi milli skynfæra líkamans sem senda boð til heilans um hreyfingu – kyrrstöðu.
Þegar einstaklingur er úti á sjó þá nema skynjarar í vökvafylltum gangi í innra eyra hreyfingu og senda boð til heilans að einstaklingur sé á hreyfingu. Augun senda hins vegar boð til heilans um að viðkomandi sé kyrr. Heilinn á erfitt með að vinna úr þessum misvísandi og ósamræmdu upplýsingum og sendir skilaboð til magans um að tæma sig – þ.e. veldur uppköstum.
Einkenni sjóveiki eru þreyta, ógleði, svimi, svitakóf og uppköst.
Góð ráð til að hindra sjóveiki:
Lyf við sjóveiki þ.e. lyf sem slá á einkennin og fást án lyfseðils í apóteki.
Önnur ráð:
Hvar í skipinu er best að vera o.fl.
Þungun:
Þungaðar konur sem þjást af sjóveiki mega nota koffinátín í litlum skömmtum en best er að ráðfæra sig við lækni eða lyfjafræðing.
Þunguðum konum er ekki ráðlagt að nota engifer þar sem það er ekki staðfest hvort það geti haft skaðleg áhrif á fóstur.