Útsýnisskálinn opnaður - myndband
Listaverkið. Mynd Halldór B.

Hluti af nýju listaverki Ólafs Elíassonar í Vestmannaeyjum var formlega opnað í gær á nýja hrauninu að viðstöddum meðal annars listamanninum sjálfum og Hönnu Katrínu Friðriksson atvinnuvegaráðherra.

Listaverkið ber vinnuheitið Sjónarhorn Flakkarans (The Wanderers Perspective) og skiptist í tvo meginhluta. Annars vegar er um að ræða nýjan útsýnisskála sem tekinn var í notkun í gær og hins vegar göngustíg sem lagður verður umhverfis gíg Eldfells.

Vernd og öryggi hluti af verkefninu

Göngustígurinn verður samkvæmt upplýsingum frá Vestmannaeyjabæ órjúfanlegur hluti af listaverkinu sjálfu, en honum er einnig ætlað að verja viðkvæma náttúru svæðisins og bæta öryggi þeirra ferðalanga sem heimsækja Eldfell.

Meðal annars af þeirri ástæðu hlaut verkefnið hæsta styrk úr Framkvæmdasjóði ferðamannastaða við nýjustu úthlutun atvinnuvegaráðuneytisins, alls um 107 milljónir króna. Með því er verkefnið sagt fullfjármagnað.

Stefnt að verklokum í byrjun næsta árs

Gert er ráð fyrir að framkvæmdir við göngustíginn hefjist innan skamms og að þeim verði lokið fyrir áramót. Ef áætlanir ganga eftir verður listaverkið fullfrágengið fyrir 23. janúar á næsta ári þegar 54 ár verða liðin frá upphafi Heimaeyjargossins árið 1973.

Hér að neðan má sjá myndband Halldórs B. Halldórssonar frá vígslunni í gær. Myndband frá dagskránni í Safnahúsinu fyrr um daginn má hins vegar sjá hér.

Play Video

Nýjustu fréttir

Kostnaður við NSL-4 stefnir í 3,1 milljarð – umfang tjónsins enn óljóst
Metþátttöku í Sumarlestri fagnað með lokahófi
Snýr aftur til Eyja með penslana í farteskinu
Landað í lok kvótaárs
100 ára afmælisblað Taflfélagsins – prentútgáfa og vefblað
Anika Hera tekur næsta skref í þjálfun
Farþegum með Herjólfi fækkar um rúm 14 prósent
Tómas Bent og félagar í Hearts tryggðu sér sæti í deildarkeppni Sambandsdeildar Evrópu
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.