Útvegsbændur hafa áhyggjur af dýpi innan hafnar

Útvegsbændur í Vestmannaeyjum hafa talsverðar áhyggjur af því að dýpi hafnarinnar sé ekki nægjanlegt. Þetta kom fram í bréfi sem þeir sendu til framkvæmda- og hafnarráðs og tekið var fyrir á fundi í gær.

„Stór skip með mikla djúpristu eiga oft í talsverðum vandamálum með að athafna sig í höfninni vegna þess að dýpið er ekki nægilegt. Oft þarf að sæta lagi að koma þessum skipum að bryggju þegar lágsjávað er og í einhverjum tilvikum er það ómögulegt. Þetta getur valdið útgerðum miklum vandræðum þegar mikið liggur við í löndun og vinnslu á hráefni og tafið skip frá veiðum,“ segir í bréfin.
Þá kemur einnig fram að aðskotahlutir séu á botni hafnarinnar sem valdið geta tjóni á botni, skrúfum og stýri skipa. Til að mynda hafi dekkjastæða farið í skrúfuna á Ísleifi VE í byrjun júlí. „Það tilvik hefði getað endað í stórtjóni og mildi að ekki fór verr,“ segir í bréfinu.

Myndin sýnir þær breytingar sem orðið hafa á dýpi innan hafnar á tímabilinu 18.8.2015 til 3.6.2020

Í svarbréfi undirrituðu af Ólafi Snorrasyni, framkvæmdarstjóra umhverfis- og framkvæmdasviðs, segir að óverulegar breytingar á dýpi sé að sjá ef bornar eru saman dýpistölur frá 2015 og í maí 2020. „Vissulega eru einhverjar breytingar en þær eru óverulegar og alltaf er eitthvað efni á ferðinni innan hafnar. Ljóst er að sandburður inni í höfn er hverfandi miðað við það sem áður var,“  segir í svarbréfinu. Þá segir að hönnunardýpi hafnarinnar sé almennt 8 metrar og að Vestmannaeyjahöfn fylgist vel með dýpinu og grípi til ráðstafana ef þurfa þykir.
Varðandi aðskotahluti mun höfnin skoða hvort hægt sé að kortleggja hvort eitthvað sé í höfninni sem skaðað gæti skip sem eru á ferðinni.

Nýjustu fréttir

Ísland vann stórsigur á Úkraínu í undankeppni EM
Blásið til hausttónleika
Leggja til aukaferju með Herjólfi á sumrin
Hörgeyrargarður og ábyrgð okkar gagnvart framtíðinni
Elliði Snær og félagar mæta Úkraínu í kvöld
Bæjarstjórn fundar í dag – bein útsending
Kvöldopnun með afsláttum og uppákomum
Erfitt vor en sterkt sumar hjá Herjólfi
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.