Vængbrotið lið mætir deildarmeisturunum
Karlalið ÍBV leikur síðasta leik sinn í Olísdeild karla í kvöld þegar liðið sækir Hauka heim í Hafnarfjörðinn en leikur liðanna hefst klukkan 19:30. Leikurinn hefur enga þýðingu fyrir liðin tvö, Haukar eru öruggir með efsta sætið og ÍBV er öruggt með annað sætið. �?að er kannski ágætt enda tveir af lykilmönnum liðsins meiddir og einnig efnilegasti leikmaður liðsins. �?annig handlegssbrotnaði Andri Heimir Friðriksson í síðasta leik og óvíst með framhaldið hjá honum. �?á er Magnús Stefánsson einnig meiddur á öxl og sömu sögu er að segja af honum, óvíst er með framhaldið. �?á meiddist Dagur Arnarsson á fæti fyrir síðasta leik. Ofan á allt þetta eru nokkrir leikmenn ekki alveg heilir heilsu og væntanlega freistandi fyrir þjálfara liðsins, þá Arnar Pétursson og Gunnar Magnússon, að hvíla þá sem eru tæpir.

Nýjustu fréttir

Ísland vann stórsigur á Úkraínu í undankeppni EM
Blásið til hausttónleika
Leggja til aukaferju með Herjólfi á sumrin
Hörgeyrargarður og ábyrgð okkar gagnvart framtíðinni
Elliði Snær og félagar mæta Úkraínu í kvöld
Bæjarstjórn fundar í dag – bein útsending
Kvöldopnun með afsláttum og uppákomum
Erfitt vor en sterkt sumar hjá Herjólfi
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.