Vannýtt gersemi
Sundlaugin okkar og svæðið um kring er til mikillar fyrirmyndar og hafa lífsgæði okkar Vestmannaeyinga verið bætt með þessari framkvæmd.
Við kynnum svæðið fyrir gestum okkar með stolti og gleðjumst yfir hvað þeir nýta það vel.
En getum við gert betur með bættri þjónustu við bæjarbúa?
Sundlaugin er vel sótt og nýtir fólk á öllum aldri þjónustu hennar. Taka þarf tillit til margra þjónustuþátta þegar fjölbreyttur hópur nýtir slíka þjónustu. Opnunartími þarf að vera langur og fjölbreytt afþreying þarf að vera fyrir alla jafnt unga sem aldna. Huga þarf að hagsmunum bæjarbúa og sníða svæðið fyrir alla aldurshópa samfélagsins. �?etta leiðir af sér aukna þjónustu við okkar gesti. Allir eru jafn mikilvægir.
Bætum þjónustuna með því að huga að auknum opnunartíma, hann á ekki að stýrast af árstíðum. Höfum útisvæðið okkar opið allt árið um kring. Til þess þarf að bæta við búnaði til upphitunar og vinna í því að stöðva vindkælingu yfir kaldasta tíma ársins. Einnig er þörf fyrir upphitaða barna innilaug sem hægt er að nýta á fjölþættan hátt. Mögulegt er að byggja hana út frá austurhlið innilaugarinnar sem fyrir er.
Við viljum byggja upp samfélag þar sem allir njóta sín og vilja búa. Setjum íbúana í forgang. Leggjum í þetta verkefni það fjármagn sem til þarf og gerum allt sundlaugarsvæðið aðgengilegt fyrir alla alltaf.
Verum metnaðarfull og göngum saman þessa vegferð Fyrir-Heimaey
Jóna Sigríður Guðmundsdóttir
2. sæti Fyrir Heimaey

Nýjustu fréttir

Herjólfur kominn í viðgerðarstopp
Eyjakonur töpuðu gegn Þór/KA á Akureyri
ÍBV og KA skildu jöfn á Hásteinsvelli
Laxey boðar til samráðs- og upplýsingafundar
Djamm Original heldur í hefðirnar  – Frá Bridgerton í aldamótastuð
Tvöfaldur leikdagur hjá ÍBV
Guðný Geirsdóttir – Íþróttamaður mánaðarins
Vestmannaeyjar í lykilhlutverki á 100 ára afmæli Landhelgisæslunnar
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.