Vantar pláss á hafnarsvæðinu – kanna framtíð Blátinds
Blátindur VE 21 stendur í dag á hafnarsvæðinu í Vestmannaeyjum. Framkvæmda- og hafnarráð vill kanna kostnað við að farga skipinu samhliða því að leita leiða til að bæta nýtingu hafnarsvæðisins. Eyjafréttir/Eyjar.net: Óskar Pétur Friðriksson

Framkvæmda- og hafnarráð Vestmannaeyjabæjar segir skort á lóðum við hafnarsvæðið vera áhyggjuefni og vill að hafnarstjóri leggi fram tillögur um hvernig megi skapa meira rými fyrir atvinnustarfsemi. Samhliða verður kannaður kostnaður við að farga Blátindi VE 21.

Mikið plássleysi er nú á hafnarsvæðinu í Vestmannaeyjum að því er fram kemur í fundargerð framkvæmda- og hafnarráðs.

Ráðið telur brýnt að bregðast við skorti á lóðum og hefur falið hafnarstjóra að vinna tillögur um hvernig auka megi framboð á hafnarlóðum. Annars vegar á að skoða möguleika á að afla nýs landsvæðis og hins vegar að endurskipuleggja núverandi hafnarsvæði þannig að það nýtist betur.

Jafnframt hefur hafnarstjóra verið falið að kanna kostnað við að farga Blátindi VE 21 og upplýsa Minjastofnun um þau áform.

Ekki kemur fram í fundargerðinni hvaða svæði koma helst til greina eða hvaða hugmyndir liggja að baki endurskipulagningu hafnarsvæðisins. Gert er ráð fyrir að hafnarstjóri leggi tillögur fyrir ráðið síðar.

Nýjustu fréttir

Nýtt vefblað Eyjafrétta komið út
Herjólfur siglir til Þorlákshafnar í morgunsárið
Bæjarbúar hvattir til að tryggja lausamuni
Endurskoða þarf hlutverk ríkisfjölmiðilsins frá grunni
ÍBV B mætir Herði í Powerade bikarnum
Treyjudagurinn haldinn í fyrsta sinn
Skammt í farþegametið í komu skemmtiferðaskipa
Samfylkingin stærst en Sjálfstæðisflokkurinn sækir í sig veðrið
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.