Veðurspáin mjög góð fyrir helgina
Mynd/Óskar Pétur Friðriksson

Fjölbreytt dagskrá Goslokahátíðar hefst með sýningum og tónleikum á morgun fimmtudag. Á morgun mun rigna hressilega á okkur en svo tekur sólin á móti okkur hina daganna.

Heiðskírt og sól á föstudaginn

Föstudagur 5. júlí
Á föstudaginn fer svo m.a. fram 100 ára afmælishátíð Vestmannaeyjakaupstaðar og setning Goslokahátíðar á Skannsvæðinu. Klukkustund áður en afmælishátíðin fer fram mun Leikhópurinn Lotta sýna Litlu hafmeyjuna á Skanssvæðinu og Cirkus Flik Flak verður á svæðinu þannig að ungir sem aldnir fá eitthvað við sitt hæfi.
Um kvöldið býður Vestmannaeyjabær til stórtónleika í Íþróttamiðstöðinni og síðar um kvöldið verður Pop Quiz fyrir 13-17 ára í Tónlistarskólanum.


 

Það verður blíða þegar gamla Goslokastemningin í Skvísusundi verður endurvakin

Laugardagur 6. júlí
Á laugardaginn verður m.a. dorgveiðikeppni á Nausthamarsbryggju, sundlaugadiskó, grill- og götustemning við Bárugötu í boði Landsbankans og brekkusöngur með Ingó Veðurguði. Um kvöldið verður gamla Goslokastemningin í Skvísusundi endurvakin í krónum með hljómsveitum og trúbador milli kl. 23 og 01:00. Síðar heldur fjörið áfram á Skipasandi fram til 03:30.


 

Sunnudagurinn 7.júlí
Á  sunnudaginn verður m.a. göngumessa og sýning Cirkus Flik Flak í Íþróttamiðstöðinni og Mugison tónleikar um kvöldið. Auk þess verður í boði fjöldi listasýninga og tónleika yfir helgina.

Eyjamenn og aðrir gestir eru hvattir til að mæta á sem flesta viðburði.

 

 

 

Nýjustu fréttir

„Mig langar eiginlega bara að verða söngvari“
Sigurður Arnar kveður ÍBV og semur við Val
Trúnaður má ekki verða skjól fyrir þögn
Gular veðurviðvaranir fyrir Suðurland og Faxaflóa
Þekkirðu leikarana? – Saga Leikfélags Vestmannaeyja lifnar við
Vinnslustöðin komin með um 11.000 tonn af síld
Um 70% foreldra sögðust finna mun
Omar Sowe yfirgefur ÍBV
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.