Vegan janúar = Veganúar

Veganúar er árlegt átaksverkefni sem hófst í Bretlandi 2014 og hvetur fólk til að prufa grænkera lífstílinn (e.vegan) í einn mánuð, janúar, ár hvert. Er þetta gert til að vekja athygli á áhrifum neyslu dýraafurða á heilsu, dýravelferð og umhverfið. Í skýrslu Sameinuðu þjóðanna, sem gefin var út í október, sagði frá alvarlegri stöðu baráttunnar við loftlagsmál og vekur athygli á að nauðsynlegt sé t.d. að breyta landnýtingu, matarsiðum og ferðavenjum. En með ábyrgri neyslu getur hver og einn haft áhrif. Umhverfis Suðurland hvetur þá sem ekki treysta sér til að fara alla leið í grænkera lífstílnum að kynna sér málefnið og reyna að breyta hlutfalli matvæla sinna svo stærri hluti en áður komi út plönturíkinu, ef til vill geta ákveðnar máltíðir eða dagar verið alveg kjötlausir. Leyfum náttúrunni að njóta vafans.

Umhverfis Suðurland

Nýjustu fréttir

Gul viðvörun á Suðurlandi – hviður geta farið yfir 30 m/s
Arnór maður leiksins í sigri Karlskrona
Sálmastund með þér
Erlingur hefur snúið gengi Minden við – þrír sigrar í röð
Telja að tilkynna megi um vernd 1,6% hafsvæða
ÍBV og Fram mætast í toppslag í Eyjum
Bikarævintýri ÍBV 2 heldur áfram gegn Þór í dag
ÍBV vann sex marka sigur á Þór
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.