Vekja athygli á mjög slæmri veðurspá
Lögreglan í Vestmannaeyjum og Almannavarnadeild ríkislögreglustjóra vilja vekja athygli á mjög slæmri veðurspá en tvær mjög krappar lægðir ganga yfir landið í dag og á morgun.
Veðurspáin verður uppfærð reglulega og vill lögreglan beina því til fólks að fylgjast vel með veðurspám og fréttum í fjölmiðlum.
Vatnsveður og stormur
Almannavarnadeild ríkislögreglustjóra vill vekja athygli á að búist er við tveimur kröppum lægðum upp að landinu frá föstudagsmorgni fram á laugardagskvöld samkvæmt spá Veðurstofunnar. Spáð er suðaustan stormi eða roki á morgun (SA 20-25 m/s) en sunnan roki eða ofsaveðri á laugardag (S 25-30 m/s). Mikið vatnsveður fylgir þessum lægðum og hefur verið gefin út sérstök viðvörun þess efnis.
Miðað við þessa veðurspá verður lítið ferðaveður á landinu S- og V-verðu á morgun, bæði vegna veðurhæðar og úrkomu. Á laugardag er ekkert ferðaveður um allt land fram á kvöld.
Viðvörun
Búist er við stormi eða roki, meðalvindhraða 20-25 m/s, víða á landinu á morgun, föstudag. �?tlit er fyrir ofsaveður um vestanvert landið á laugardag, en stormi eða roki austantil.
Varað er við mikilli úrkomu og leysingum á Suðaustur- og Suðurlandi á morgun, en um allt land á laugardag. �?ar sem mikill nýlega fallinn snjór er víða um land má búast við vatnsflóðum, krapaflóðum og aurflóðum í þessum aðstæðum sem geta skapast á nokkurra ára fresti. Einnig ber að hafa í huga hættuna á votum snjóflóðum.
Veðurspáin fyrir morgundaginn, 13. mars er svohljóðandi:
Vaxandi suðaustanátt með morgninum, 18-25 m/s S- og V-til síðdegis, en 15-23 A-lands annað kvöld. Slydda og síðar rigning, þar af talsverð eða mikil um landið S-vert. Dregur úr vindi og úrkomu annað kvöld, fyrst fyrir vestan. Hlýnar seinni partinn, hiti 3 til 8 stig annað kvöld.
Athugasemdir veðurfræðings:
Í kvöld er búist við stormi (meðalvindur yfir 20 m/s) syðst, en víða um land á morgun. Búist er við mikilli úrkomu S- og SA-lands næstu tvo daga. Á laugardaginn er von á enn verra veðri á öllu landinu, frá laugardagsmorgni þar til síðdegis. Ferðalög á milli landshluta geta því verið varasöm.
Nánari upplýsingar er að finna á vefsíðu Veðurstofunnar www.vedur.is

Nýjustu fréttir

Elmar áfram hjá Nordhorn-Lingen
Róbert hjá ÍBV næstu tvö árin
Framkvæmdir langt komnar í Íþróttamiðstöðinni
Skákþing Vestmannaeyja: Úrslitin ráðast í síðustu umferðunum
Yfir 90% íbúa ánægðir
Bríet kemur fram á Hljómey
Sæunn Magnúsdóttir gengur til liðs við Miðflokkinn
Framkvæmdir hafnar við Áshamar 77  
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.