Í dag fara fram sveitarstjórnarkosningar og bæjarbúar velja það framboð og þá fulltrúa sem þeir treysta best til að taka ákvarðanir sem varða stefnu og framtíð Vestmannaeyja.
Í nýrri bæjarstjórn munu níu bæjarfulltrúar taka sæti. Sjálfstæðisflokkurinn er eina framboðið sem býður fram fólk sem hefur reynslu af því að sitja sem kjörnir bæjarfulltrúar.
Endurnýjun er mikilvæg. Nýjar ferskar raddir þurfa að blandast reglulega inn í bæjarmálin, til að forðast stöðnun, en að sama skapi er afar mikilvægt að hafa reynslu og þekkingu á málefnum sveitarfélagsins. Þetta er sérstaklega mikilvægt nú þegar að mjög stór og kostnaðarsöm hagsmunamál liggja fyrir.
Á mínum ellefu árum sem bæjarfulltrúi hef ég prófað að sitja í sterkum meirihluta, aðhaldsmiklum minnihluta og samstarfsfúsum minnihluta. Á þessum tíma hef ég lært að mestur árangur næst fyrir samfélagið ef við náum að virkja orku allra bæjarfulltrúa til að vinna saman að sameiginlegum og uppbyggilegum markmiðum fyrir sveitarfélagið. Sama hver niðurstaða kosninganna verður, er ég þess fullviss að allir kjörnir fulltrúar munu leggja sig fram við að vinna að bættum hag sveitarfélagsins og bæjarbúa allra. Við erum sterkari saman.
Ég sit í 5. sæti á lista Sjálfstæðisflokksins, baráttusæti um hreinan meirihluta. Ég hef mikla reynslu, þekkingu, áhuga og orku, sem ég vil nýta í þágu þessa yndislega samfélags sem mér þykir svo innilega vænt um.
Ég óska eftir þínum stuðningi til að halda áfram að sitja sem bæjarfulltrúi í Vestmannaeyjum.
Hildur Sólveig Sigurðardóttir, sjúkraþjálfari og bæjarfulltrúi