Velkomin til Vestmannaeyja á Umdæmisþing 2015
P1012065
OLYMPUS DIGITAL CAMERA
Kiwanisklúbburinn Helgafell heldur nú Umdæmisþing í annað sinn, en Umdæmisþing var haldið í Vestmannayjum síðast 1983. Síðustu dagar fyrir þingið 1983 voru mjög annasamir fyrir félaga klúbbsinns en þá var unnið hörðum höndum við að koma húsnæði Klúbbsins í það horf að hægt væri að halda Umdæmisþingið í húsinu okkar sem verið hafði í byggingu. Nú í ár er staðan sú að við erum enn að gera húsið klárt fyrir umdæmisþing, tekið í gegn að utan sem innan og jafnframt sett í húsið lyfta sem verið hefur í umræðu frá því húsið var byggt.
�?inghald verður húsi Helgafells en fundir og fræðsla í nálægum sölum þar sem það á við. �?ingsettning verður í
Landakirkju og hefst athöfnin kl.20.30 föstudagskvöldið 11. september. Að setningarathöfninni lokinni býður Helgafell til samfagnaðar í húsnæði klúbbsinns við Strandveg.
�?ingfundi verður fram haldið laugardaginn 12. september í húsi klúbbsinns, en lokahóf verður haldið í Höllinni, veislusal við Löngulág.
Makaferð munum við Helgafellsfélagar hafa í boði fyrir þá sem þess óska, þar sem gerð verða skil á einstakri náttúru eyjanna, sögu og jafnvel einhverju óvæntu..
Erum við Helgafellsfélagar ekki í vafa um að helgin 11.-13. september verði mjög árangursrík og skemmtileg fyrir Kiwanisfélaga, maka þeirra og aðra sem að þinginu koma, þingfulltrúa, embættisfólk svo og erlenda fulltrúa og gesti.
Mætum prúðbúin til lokahófs í Höllinni í lok umdæmisþings og gleðjumst þar saman.
Allar nánari upplýsingar er að finna á http://www.kiwanis.is/is/page/umdaemisthing
Sjáumst sem allra flest á 45. umdæmisþingi Kiwanisumdæmisins Ísland-Færeyjar í Vestmannaeyjum 11. �?? 13. september.

Nýjustu fréttir

Tæp 63 prósent segja nei í Suðurkjördæmi
ÍBV stelpunum spáð sigri í Olís deildinni – Strákunum spáð sjöunda sæti
Spyr Morgunblaðið spurninga sem RÚV lætur eiga sig?
Myndband: Ný íbúðablokk tekur á sig mynd við Áshamar
Sjö sóttu um – sex umsóknir standa eftir
Evrópa er meira en Evrópusambandið
Suðurlandi allt
Tvö afmælismót Taflfélagsins um helgina
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.