„Verður nóg að gera hjá okkur næstu dögum”
default
Gullberg VE á siglingu. Ljósmynd/ Þorgeir Baldursson

Það hefur ekki verið slegið slöku við í makrílvinnslunni hjá Vinnslustöðinni þrátt fyrir að Eyjamenn haldi sína Þjóðhátíð. Rætt er við Sindra Viðarsson, sviðsstjóra uppsjávarsviðs Vinnslustöðvarinnar á fréttavef fyrirtækisns í morgun.

„Já, það er rétt. Við erum búin að vera á fullu í vinnslu síðan á laugardagsmorgun. Þá kom Huginn með ca. 1.300 tonn. Við erum að klára Huginn núna og Gullberg er að koma í hádeginu með ca. 1.300 tonn einnig. Þannig að það verður nóg að gera hjá okkur næstu dögum,” segir hann og hrósar í kjölfarið starfsfólkinu.

„Má kannski segja líka að fólkið okkar er búið að standa sig frábærlega og ýmsir hlaupið til að redda málum sem upp hafa komið.” Aðspurður um fregnir af miðunum segir Sindri að það sé búið að vera frekar rólegt á miðunum síðustu tvo daga.

Nýjustu fréttir

Dýptarmælingar fyrirhugaðar í Landeyjahöfn
Landsréttur hafnaði kröfu um gæsluvarðhald
Framkvæmdir í ferbrúar-blíðunni
„Þær halda utan um hjartað í Hljómey“ 
Skólamál og ábyrgð í opinberri umræðu
Eyjamenn með stórsigur í Suðurlandsslagnum
Eyjarnar landa í Eyjum í dag
Útför: Þórunn Pálsdóttir
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.