Verklagi var breytt um borð í Herjólfi eftir atvikið
Minnstu mátti muna að illa færi en aðeins 148 metr­ar voru á milli flutn­inga­skips­ins Arn­ar­fells og farþega­ferj­unn­ar Herjólfs í ág­úst síðastliðnum. And­vara- og sam­skipta­leysi stjórn­enda Herjólfs er tal­in helsta ástæðan, sam­kvæmt rann­sókn­ar­nefnd sam­göngu­slysa. www.mbl.is
At­vikið átti sér stað 2. ág­úst í fyrra en þá lagði Herjólf­ur úr höfn í Vest­manna­eyj­um klukk­an 18.45 og var stefn­an sett á Land­eyja­höfn. Arn­ar­fell var statt milli á milli Vest­manna­eyja og lands á leið frá Fær­eyj­um til Reykja­vík­ur. Í niður­stöðu rann­sókn­ar­nefnd­ar sam­göngu­slysa seg­ir að vakt­haf­andi skip­stjórn­ar­menn hafi ekki vitað um hvorn ann­an fyrr en skip­in komu í aug­sýn und­an Elliðaey klukk­an 18.54.
�??Herjólf­ur var með Arn­ar­fell á stjórn­borða og þurfti stjórn­andi þess að beygja til stjórn­borða til að forða árekstri þegar stutt var á milli skip­anna,�?? seg­ir í niður­stöðunni. Minnsta fjar­lægðin á milli skip­anna var 0,08 sjó­míl­ur eða um 148 metr­ar.
Sam­kvæmt yf­ir­stýri­manni Arn­ar­fells var fjar­lægðin milli skip­anna þegar þau komu í aug­sýn hvort við annað 0,95 sjó­míl­ur. �?á sáu menn að við óbreytt­ar for­send­ur yrði árekst­ur. Herjólf­ur hefði dregið úr ferð en það hefði haft lít­il áhrif vegna þess að mjög stutt var á milli skip­anna. Eins og áður sagði þurfti stjórn­andi Arn­ar­fells síðan að beygja til stjórn­borða til að forða árekstri. Eft­ir at­vikið var verklagi breytt um borð í Herjólfi í þá veru að koma veg fyr­ir að svona gerðist aft­ur.

Nýjustu fréttir

Hermundur hugmyndasmiður Kveikjum neistann 
99 á atvinnuleysisskrá í Eyjum – árstíðasveiflur skýra haustaukningu
Ómetanlegt að sjá heilt samfélag taka höndum saman
Radarhýsið komið á sinn stað á Stórhöfða
Fjölbreytt fjögurra daga menningarveisla
Vikan í Eyjum: Fjármál bæjarins, brons og besta lundasumarið
„Mun betra að gera þetta með skipulögðum hætti“
Besta varpsumar lundans frá upphafi mælinga
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.