Verum samfó!
Arna Huld Sigurðardóttir er formaður stjórnar.
Á morgun, laugdardaginn 28. október, göngum við til kosninga eftir stutt kjörtímabil. Kjörtímabil sem hefur að miklum hluta farið í að fela og gera lítið úr stórum og mikilvægum málum.
�?g er til dæmis enn að reyna að komast að því hver þessi annar hver maður er sem á 50 milljónir. �?g þekki greinilega ekki rétta fólkið! Og ekki þekki ég neinn sem man ekki eftir því að eiga 50 milljónir, aftur, þá þekki ég greinilega ekki rétta fólkið!
Kosningarnar á morgun snúast um það að fólk eigi rétt á að lifa mannsæmandi lífi. �?ær eiga ekki að snúast um það að skatturinn verði lækkuður í 35% fyrir alla. �?ví hverjir græða mest á því? �?g mun sjálfsagt græða nokkra þúsundkalla, en er það þess virði? Er ekki nær að setja meira fjármagn í velferðarkerfið okkar? Í almenna heilbrigðisþjónustu sem blæðir vegna einkageirans, skólana sem eru að mennta framtíðina og löggæsluna sem sjá um að passa okkur hin. Og ekki virðist veita af fjármunum til að bæta samgöngur, og ég er ekki viss um að þær batni við að lækka skattinn í 35%.
Kæri kjósandi, vertu samfó og nýttu kosningaréttinn þinn.
Látum hjartað ráða för, X-S.
Arna Huld Sigurðardóttir, hjúkrunarfræðingur, 7. sæti Samfylkingarinnar í Suðurkjördæmi

Nýjustu fréttir

Tyrkjaránsganga Sögusetursins 1627
Einn túr eftir fyrir sumarstopp
NovaFest á Vöruhúsinu á Þjóðhátíð
ÍBV tekur á móti Val í kvöld
Rafmótorinn tilbúinn – Herjólfur úr áætlun í allt að fjóra sólarhringa
Óboðnir gestir undir yfirborðinu
Níu lið frá ÍBV tóku þátt í Símamótinu
Heimsfaraldur á fjögurra ára fresti
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.