ÍBV og Þjóðhátíð í Vestmannaeyjum 2022 munu taka þátt í átaki Ríkislögreglustjóra og Neyðarlínunnar; Verum vakandi. Merki átaksins verður áberandi og varningur merktur átakinu til sölu á hátíðarsvæðinu.
Öryggi gesta á Þjóðhátíð er ætíð í forgrunni og mun Margréti Rós Ingólfsdóttir félagsfræðingur sem starfað hefur hjá félagsþjónustu Vestmannaeyja og verið hluti af áfallateymi Þjóðhátíðar síðastliðin 15 ár taka að sér að leiða starf forvarnarhóps ÍBV.
Þjóðhátíðarnefnd og ÍBV vilja sérstaklega þakka Bleika Fílnum, stofnendum og öllum þeim frábæru sjálfboðaliðum sem komið hafa að átakinu á hverri hátíð frá 2012 innilega fyrir þeirra óeigingjarna og ómetanlega starf gegn kynferðisofbeldi á Þjóðhátíð og um allt land.
Skemmtum okkur fallega saman í sumar og Verum Vakandi
ÍBV og Þjóðhátíðarnefnd
Mynd: heimaslóð.is




















Skráðu þig á fáðu nýjustu tilkynningar fyrst
Ekki liggja fyrir nýjar mælingar
Hvað er sjóveiki?
Sjóveiki er misræmi milli skynfæra líkamans sem senda boð til heilans um hreyfingu – kyrrstöðu.
Þegar einstaklingur er úti á sjó þá nema skynjarar í vökvafylltum gangi í innra eyra hreyfingu og senda boð til heilans að einstaklingur sé á hreyfingu. Augun senda hins vegar boð til heilans um að viðkomandi sé kyrr. Heilinn á erfitt með að vinna úr þessum misvísandi og ósamræmdu upplýsingum og sendir skilaboð til magans um að tæma sig – þ.e. veldur uppköstum.
Einkenni sjóveiki eru þreyta, ógleði, svimi, svitakóf og uppköst.
Góð ráð til að hindra sjóveiki:
Lyf við sjóveiki þ.e. lyf sem slá á einkennin og fást án lyfseðils í apóteki.
Önnur ráð:
Hvar í skipinu er best að vera o.fl.
Þungun:
Þungaðar konur sem þjást af sjóveiki mega nota koffinátín í litlum skömmtum en best er að ráðfæra sig við lækni eða lyfjafræðing.
Þunguðum konum er ekki ráðlagt að nota engifer þar sem það er ekki staðfest hvort það geti haft skaðleg áhrif á fóstur.