Almenn óánægja ríkir meðal íbúa á suðursvæði Vestfjarða um þessar mundir vegna samgönguleysis. Landleiðin til Reykjavíkur hefur verið nánast ófær undanfarið og ferjan Baldur hefur verið upptekin í siglingum fyrir Vestmannaeyinga. Búið var að auglýsa ferð með Baldri yfir Breiðafjörð á laugardag en vegna þess að ekki náðist að klára viðgerð á Herjólfi var ferðinni aflýst og Baldur sinnti því Vestmannaeyingum um helgina.