Vestmannaey út milli hátíða

Einungis eitt skip úr flota Síldarvinnslunnar og tengdra fyrirtækja er á sjó nú á milli jóla og nýárs. Það er Vestmannaey VE sem hélt til veiða í gærkvöldi. Heimasíða Síldarvinnslunnar ræddi stuttlega við Birgi Þór Sverrisson skipstjóra í morgun og spurði fyrst út í veðrið. „Það er búinn að vera bölvaður norðan garri. Við erum í Háfadýpinu að veiðum núna og gerum ráð fyrir að fara í land á miðvikudagskvöld. Þetta verða semsagt þrír sólarhringar að veiðum. Við munum svo fagna nýju ári og halda væntanlega á ný til veiða 2. janúar,“ segir Birgir Þór.

Nýjustu fréttir

Ísland vann stórsigur á Úkraínu í undankeppni EM
Blásið til hausttónleika
Leggja til aukaferju með Herjólfi á sumrin
Hörgeyrargarður og ábyrgð okkar gagnvart framtíðinni
Elliði Snær og félagar mæta Úkraínu í kvöld
Bæjarstjórn fundar í dag – bein útsending
Kvöldopnun með afsláttum og uppákomum
Erfitt vor en sterkt sumar hjá Herjólfi
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.