Vestmannaey VE og Bergey VE verða endurnýjaðar
Undirritaður hefur verið samningur um smíði á tveimur nýjum togskipum fyrir útgerðarfélagið Berg-Hugin ehf. í Vestmannaeyjum en Bergur-Huginn er dótturfyrirtæki Síldarvinnslunnar hf. Skipunum er ætlað að leysa af hólmi Vestmannaey VE og Bergey VE og verður heimahöfn þeirra í Vestmannaeyjum. Áætlað er að smíði hvors skips taki 14 mánuði og er gert ráð fyrir að fyrra skipið verði afhent kaupanda í marsmánuði 2019 og hið síðara í maí 2019. Síldarvinnslan greindi frá þessu á faceobook síðu sinni.
Alls undirrituðu fulltrúar fjögurra íslenskra útgerðarfyrirtækja samninga um smíði á sjö samskonar skipum. Auk skipanna sem smíðuð verða fyrir útgerðarfélagið Berg-Hugin verða tvö skip smíðuð fyrir Gjögur, tvö fyrir Skinney �?? �?inganes og eitt fyrir �?tgerðarfélag Akureyringa.
Nýju skipin eru smíðuð af VARD í Noregi og fyrirkomulag og val á búnaði er unnið í samstarfi við útgerðirnar. Skipin verða 28,95 m að lengd og 12 m að breidd. Í skipunum verða tvær aðalvélar með tveimur skrúfum. Ný kynslóð rafmagnsspila verða í skipunum frá Seaonics.
�?essi nýju systurskip verða vel búin í alla staði og í þeim verður rými fyrir 13 manns. �?au munu taka 244 x 460 lítra kör í lest (um 80 tonn af ísuðum fiski). Við hönnun skipanna hefur verið vandlega hugað að allri nýtingu á orku.
Við hönnun á vinnsludekki verður höfð að leiðarljósi vinnuaðstaða sjómanna, öflug kæling og góð meðhöndlun á fiski. Horft verður til þeirra gæða og reynslu sem íslenskir framleiðendur búa yfir á smíði vinnslubúnaðar.
�?að var Gunnþór B. Ingvason framkvæmdastjóri Síldarvinnslunnar sem undirritaði samninginn fyrir hönd dótturfyrirtækisins en Eyvindur Sólnes lögmaður á Lex lögmannsstofu aðstoðaði útgerðirnar við gerð samninganna. Um samningana hafði Gunnþór eftirfarandi að segja:
�??Ástæða þess að ákveðið var að semja við VARD er sú að um er að ræða öflugt fyrirtæki, þar sem ferlið frá hönnun skips til afhendingar á fullbúnu skipi er á hendi sama aðila. �?ví er aðeins við einn aðila að semja.�??
Síðastliðið sumar kynnti Síldarvinnslan þau áform sín að endurnýja allan ísfisktogaraflota fyrirtækisins og er þessi nýsmíðasamningur fyrsti áfangi þess viðamikla verkefnis.

Nýjustu fréttir

Prjónuðu 83 húfur gegn einelti
Anita tekur við sem hjúkrunarstjóri heilsugæslunnar í Eyjum
Samfélagsstyrkur Krónunnar styður þjálfun barna í Vestmannaeyjum  
Bærinn krefst skýrra svara um NSL-4
Uppselt á konukvöld handknattleiksdeildar ÍBV
Eyjarnar með um 100 tonn eftir stuttan túr
Andvari vill flýta umbótum í menntakerfinu 
N1 opnar hraðhleðslustöð í Eyjum – Herbert fyrstur til að hlaða
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.