Vestmannaeyjabær og Fjarðabyggð neydd til hópuppsagna

Eins og fram hefur komið í fjölmiðlum hafa fjögur sveitarfélög á landsbyggðinni þurft að greiða mörg hundruð milljóna króna með rekstri dvalar- og hjúkrunarheimila, starfsemi sem er á ábyrgð ríkisins að fjármagna.

Sveitarfélögin sem um ræðir eru Akureyri, Vestmannaeyjar, Sveitarfélagið Hornafjörður og
Fjarðabyggð. Umrædd sveitarfélög eru öll með samninga við Sjúkratryggingar Íslands um rekstur dvalar- og hjúkrunarheimila. Þar sem tilraunir til þess að fá nægilegar fjárveitingar til reksturs heimilanna hafa verið árangurslausar gripu sveitarfélögin til þess örþrifaráðs að segja upp samningum við Sjúkratryggingar Íslands, skv. uppsagnarákvæðum samninganna og skila þannig rekstrinum aftur til ríkisins.

Allt frá því sveitarfélögin sögðu upp samningunum hefur ferlið í kringum skilin verið gert eins torsótt og mögulegt er og sveitarfélögin sem um ræðir hafa mætt tómlæti og áhugaleysi heilbrigðisyfirvalda vegna málsins.

Þá eru störf og réttarstaða starfsfólks umræddra stofnana tryggð við aðilaskipti á Akureyri og Hornafirði, en nú er ljóst að ekki er vilji til slíks hvað varðar Vestmannaeyjar og Fjarðabyggð. Heilbrigðisráðherra hefur val um að láta lög um réttarstöðu starfsfólks við aðilaskipti gilda og því hlýtur það að vera val hennar að slíkt verði ekki í áðurnefndum sveitarfélögum. Verði slíkt ofan á kallar það á hópuppsagnir og óvissu í þessum landsbyggðarsveitarfélögum, þar sem mikill meirihluti eru kvennastörf við umönnun okkar viðkvæmustu einstaklinga.

Sveitarfélögin Vestmannaeyjar og Fjarðabyggð sætta sig engan veginn við þessa stöðu mála. Hafa því bæjarráð þeirra beggja samþykkt að óska eftir frestun á uppsögn samninga um rekstur hjúkrunarheimila sinna um einn mánuð, til 1. maí nk. Jafnframt hafa bæjaryfirvöld óskað eftir því við velferðarnefnd Alþingis að hún skerist í málið og leysi úr þessari óvissu þegar í stað. Munu sveitarfélögin gera allt sem í þeirra valdi stendur til þess að tryggja sömu réttindi og hjá starfsfólki annarra hjúkrunarheimila sem verið er að flytja milli rekstraraðila. Í þessu samhengi er rétt að taka fram að það virðist ríkinu auðvelt að láta umrædd lög gilda þegar verið er að flytja starfsemi frá ríki til sveitarfélaganna og tryggja þannig störf og réttindi starfsfólks, en öðru gegnir þegar verið er að flytja starfsemi í hina áttina. Óboðlegt er að slík mismunun skuli eiga sér stað.

Því leggja bæjaryfirvöld í Vestmannaeyjum og Fjarðabyggð allt sitt traust á að Alþingi bregðist við nú þegar og tryggi farsæla lausn þessara mála þar sem ljóst er að heilbrigðisráðherra ætlar sér ekki að vinna að slíku frekar.

Nýjustu fréttir

Hoppukastalar, pylsur og Arsenal-stemning í Höllinni
Hjónin Rósa og Ágúst deila áhuga á handverki
Eyjakonur sækja Stjörnuna heim í mikilvægum leik
45 nemendur útskrifuðust frá FÍV
Eldri hjón deila 336 milljónum með börnum og barnabörnum
Hipsumhaps á Þjóðhátíð
Stuttir túrar skiluðu góðum afla
Loðnan skilaði sjómönnum milljónum á fáeinum vikum

Góð ráð fyrir siglingu

Sjóveiki

Hvað er sjóveiki?

Sjóveiki er misræmi milli skynfæra líkamans sem senda boð til heilans um hreyfingu – kyrrstöðu.

Þegar einstaklingur er úti á sjó þá nema skynjarar í vökvafylltum gangi í innra eyra hreyfingu og senda boð til heilans að einstaklingur sé á hreyfingu. Augun senda hins vegar boð til heilans um að viðkomandi sé kyrr. Heilinn á erfitt með að vinna úr þessum misvísandi og ósamræmdu upplýsingum og sendir skilaboð til magans um að tæma sig – þ.e. veldur uppköstum.

Einkenni sjóveiki eru þreyta, ógleði, svimi, svitakóf og uppköst.

Góð ráð til að hindra sjóveiki:

  • Góð hvíld daginn fyrir brottför. Að fara seint að sofa og snemma um borð í bát fer ekki vel saman ef fólk er hætt við sjóveiki.
  • Forðist áfenga drykki daginn fyrir brottför
  • Forðist djúpsteiktan, brasaðan eða saltan mat daginn fyrir siglingu.
  • Borðið góðan morgunverð. Borðið gjarnan hvítt brauð, hafragraut og ávexti þó ekki sítrus ávexti.
  • Forðist mikið koffein. Mikið kaffi er ekki það sem maganum líkar fyrir sjóferð.
  • Hafðu mat með þér á sjó. Gott er að hafa samlokur með kjúklingi eða kalkún. Kjötið er fitusnautt og brauðið er róandi í maga. Hafðu endilega eitthvað til að grípa í sem er létt í maga. Bananar eru mjög góðir til að narta í ef þú finnur fyrir ógleði en einnig er gott að hafa létt kex eða annað sem er ekki salt eða fitumikið.
  • Drekkið vel af vatni en einnig er gott er að drekka kóla drykki eða engiferöl í sjóferðinni

Lyf við sjóveiki þ.e. lyf sem slá á einkennin og fást án lyfseðils í apóteki.

  • Koffínátín – fæst án lyfseðils
  • Postafen – fæst án lyfseðils
  • Scopolamin plástur – lyfseðilsskyltEinnig má fá armbönd gegn ferðaveiki sem sumir telja að hjálpi.

Önnur ráð:

  • Engifer er jurt sem nýlega hefur fengið aukna athygli vegna þess að því er haldið fram að hún geti slegið á ógleði sem fylgir sjóveiki. Til forna tuggðu kínverskir sjómenn engiferrót til að draga úr sjóveiki. Flest lyf sem virka á ógleði verka á heilann en engifer virkar aðeins á magann. Ráðlagt er að taka 1000 mg. hylki hálftíma fyrir brottför. Einnig má taka eitt eða tvö 500 mg. hylki sem eru til viðbótar á ferðalaginu. Ekki er ráðlagt að drekka coke með engifertöflum.
  • Piparminta og te eru einnig gömul húsráð við ferðaveiki.
  • Sumum finnst betra að taka sýrujafnandi töflur, Alminox eða slíkt áður en þú heldur á sjó og þá er gott að hafa box með út á sjó.

Hvar í skipinu er best að vera o.fl.

  • Minna finnst fyrir hreyfingu og veltingi ef maður er staddur næst miðju bátsins.
  • Mörgum finnst gott að vera í kulda, t.d.að vera úti á dekki og láta vindinn leika um sig.
  • Matarlykt fer illa í þá sem hætt er við sjóveiki og einnig pústið frá bátnum.

Þungun:

Þungaðar konur sem þjást af sjóveiki mega nota koffinátín í litlum skömmtum en best er að ráðfæra sig við lækni eða lyfjafræðing.
Þunguðum konum er ekki ráðlagt að nota engifer þar sem það er ekki staðfest hvort það geti haft skaðleg áhrif á fóstur.

Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.