Vestmannaeyjabær: Ráðið í stöðu deildarstjóra launadeildar
Lína Katrín Þórðardóttir hefur verið ráðin deildarstjóri launadeildar Vestmannaeyjabæjar. Ljósmynd/Vestmannaeyjar.is

Vestmannaeyjabær hefur ráðið Línu Katrínu Þórðardóttur í starf deildarstjóra launadeildar. Starfið var auglýst í maí og bárust alls fimm umsóknir. Lína Katrín kemur til starfans með reynslu af fjármálastjórnun, launa- og mannauðsmálum auk verkefnastjórnunar. Þetta kemur fram í tilkynningu á vef bæjarins.

Þar segir ennfremur að Lína Katrín hafi lokið BA prófi í viðskiptafræðum og er viðurkenndur bókari að mennt. Hún hefur starfað undanfarin ár hjá Beluga Whale Sanctuary, Sealife Trust við fjármálastjórnun og  mannauðs-, launa- og verkefnastjórnun. Hún hefur einnig reynslu af þjónustu við skrifstofustörf og móttöku.  Lína Katrín hefur með starfsreynslu sinni verið í teymisvinnu verkefna og í farsælum samskiptum við ólíka hópa,  opinberar stofnanir og aðra hagsmunaaðila.

Vestmannaeyjabær býður Línu Katrínu velkomna og hlakkar til samstarfsins, segir að endingu í tilkynningunni.

Nýjustu fréttir

Eyjasamfélagið heillaði mig strax
Milan Tomic framlengir við ÍBV
Dreymir um að verða lögreglumaður
Þarf kjark til að fara á karlaráðstefnu?
Hákon hlakkar mest til að læra sund
Trúfesti Guðs rauði þráðurinn í 100 ára sögu
Binni Þór gerir tveggja ára samning við ÍBV
Mikill spenningur fyrir komandi tímabili
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.