Bæjarráð Vestmannaeyja kom til aukafundar á föstudaginn til þess að fjalla um og samþykkja samstarfssamning Vestmannaeyjabæjar og Vegagerðarinnar um umsjón með Herjólfi III (eldra skipi), þurrlegusamning um siglingu skipsins og viðauka um breytingar á þjónustusamningi vegna seinkunar á afhendingu nýrrar ferju.
„Samstarfssamningurinn er gerður með vísan til þjónustusamnings ríkisins við Vestmannaeyjabæ og fylgiskjöl um ferjusiglingar milli Vestmannaeyja og Landeyjahafnar/Þorlákshafnar. Samkvæmt þeim samningi tekur Vestmannaeyjabær að sér rekstur ferjusiglinga milli lands og Eyja með nýrri ferju þegar hún verður tekin í notkun. Vestmannaeyjabær hefur falið Vestmannaeyjaferjunni Herjólfi ohf. að annast verkefnið og tekur félagið við rekstri ferjuleiðarinnar þann 30. mars 2019 og sinnir því til 31. október 2021. Ekki liggur fyrir hvenær ný ferja verður tilbúin til reksturs og því er nauðsynlegt að gera ráð fyrir því að nýr rekstraraðili noti núverandi ferju fyrst um sinn. Þar til reynsla er komin á nýja ferju og ekki hafa verið teknar ákvarðanir um ráðstöfun núverandi ferju, hefur verið ákveðið tímabundið að tryggja að núverandi ferja verði til taks, tilbúin til notkunar þegar þörf er á. Á meðan á þessari tímabundnu ráðstöfun stendur mun Vestmannaeyjabær taka að sér umsjón núverandi ferju þar sem hún verður við bryggju í Vestmannaeyjahöfn.“
Bæjarráð samþykkir fyrirliggjandi samning, viðauka um breytingar á þjónustusamningi og þurrglegusamning um siglingar Herjólfs III (eldri Herjólfs) og felur bæjarstjóra að undirrita fyrrgreind skjöl.
Hvað er sjóveiki?
Sjóveiki er misræmi milli skynfæra líkamans sem senda boð til heilans um hreyfingu – kyrrstöðu.
Þegar einstaklingur er úti á sjó þá nema skynjarar í vökvafylltum gangi í innra eyra hreyfingu og senda boð til heilans að einstaklingur sé á hreyfingu. Augun senda hins vegar boð til heilans um að viðkomandi sé kyrr. Heilinn á erfitt með að vinna úr þessum misvísandi og ósamræmdu upplýsingum og sendir skilaboð til magans um að tæma sig – þ.e. veldur uppköstum.
Einkenni sjóveiki eru þreyta, ógleði, svimi, svitakóf og uppköst.
Góð ráð til að hindra sjóveiki:
Lyf við sjóveiki þ.e. lyf sem slá á einkennin og fást án lyfseðils í apóteki.
Önnur ráð:
Hvar í skipinu er best að vera o.fl.
Þungun:
Þungaðar konur sem þjást af sjóveiki mega nota koffinátín í litlum skömmtum en best er að ráðfæra sig við lækni eða lyfjafræðing.
Þunguðum konum er ekki ráðlagt að nota engifer þar sem það er ekki staðfest hvort það geti haft skaðleg áhrif á fóstur.