Vestmannaeyjahlaupið verður haldið laugardaginn 7. september og verður boðið upp á 5 km, 10 km og 21 km hlaupaleiðir. Vestmannaeyjahlaupið er þekkt fyrir mikilfenglega hlaupaleið og skemmtilegt andrúmsloft og var Vestmannaeyjahlaupið kosið götuhlaup ársins 2016 og 2017 af lesendum hlaup.is.
Tímasetningar
5 km og 10 km hlaupið hefst við Íþróttamiðstöðina kl. 13 en hálfmaraþonið hefst kl. 12:30. Sameiginleg upphitun fyrir 5 km og 10 km hlaupið hefst kl. 12:35.
Hlaupaleiðin
Allar hlaupaleiðir á einu korti.
Þátttökugjöld og skráning
Forskráning er á hlaup.is. Forskráningu lýkur kl. 20:00 föstudaginn 6. september. Ekki verður tekið á móti skráningum á hlaupdag . Keppnisnúmer og gögn eru afhent milli kl. 18-20 föstudagskvöldið 6. september eða um morguninn fyrir hlaup.
Eitt þátttökugjald 3.000 kr er í hlaupið, óháð vegalengd. Hlauparar fæddir 2004 og síðar fá frítt í hlaupið.
Frítt er í Herjólf fyrir einstaklinga (ekki bíla) fram og til baka (200 frímiðar í boði). Ferðirnar fyrir hlaupara eru kl. 10:45 frá Landeyjarhöfn og kl. 18:15 frá Vestmannaeyjum. Listi með nöfnum þeirra sem panta Herjólfsferð verður í Landeyjarhöfn og í Vestmannaeyjum þannig að nóg er að sýna skilríki til að komast í ferðina.
Verðlaun
Veitt eru verðlaun fyrir fyrsta karl og fyrstu konu í hverri vegalengd. Einnig verða veitt glæsileg útdráttarverðlaun. Allir hlauparar fá minjagrip sem þátttökuviðurkenningu.
Búningsaðstaða
Íþróttahúsið verður opið fyrir og eftir hlaup og hægt er að fara í sund þar og er það innifalið í gjaldinu.
Nánari upplýsingar
Þú getur líka fylgst með hlaupinu á Facebook og á vef hlaupsins, www.vestmannaeyjahlaup.is.
Allur ágóði af hlaupinu rennur til góðgerðarmála.
Upplýsingar veitir Sigmar Þröstur Óskarsson í síma 895-3339 eða Magnús 897-1110.
Hlaup.is á Facebook
Viltu fylgjast með hlaup.is á Facebook ? Settu “Like” á Facebook síðu hlaup.is.
Hvað er sjóveiki?
Sjóveiki er misræmi milli skynfæra líkamans sem senda boð til heilans um hreyfingu – kyrrstöðu.
Þegar einstaklingur er úti á sjó þá nema skynjarar í vökvafylltum gangi í innra eyra hreyfingu og senda boð til heilans að einstaklingur sé á hreyfingu. Augun senda hins vegar boð til heilans um að viðkomandi sé kyrr. Heilinn á erfitt með að vinna úr þessum misvísandi og ósamræmdu upplýsingum og sendir skilaboð til magans um að tæma sig – þ.e. veldur uppköstum.
Einkenni sjóveiki eru þreyta, ógleði, svimi, svitakóf og uppköst.
Góð ráð til að hindra sjóveiki:
Lyf við sjóveiki þ.e. lyf sem slá á einkennin og fást án lyfseðils í apóteki.
Önnur ráð:
Hvar í skipinu er best að vera o.fl.
Þungun:
Þungaðar konur sem þjást af sjóveiki mega nota koffinátín í litlum skömmtum en best er að ráðfæra sig við lækni eða lyfjafræðing.
Þunguðum konum er ekki ráðlagt að nota engifer þar sem það er ekki staðfest hvort það geti haft skaðleg áhrif á fóstur.