Vestmannaeyjahöfn næst kvótahæsta
20200409 114314
Vestmannaeyjahöfn.

Reykjavík er kvótahæsta heimahöfnin á fiskveiðiárinu 2022/2023 með alls tæp 38 þúsund þorskígildistonn sem er 11,8% af heildarkvótanum.

Þetta er breyting frá fyrra fiskveiðiári þó litlu hafi munað þegar Vestmannaeyjar voru stærsta heimahöfnin með 33.996 þorskígildistonn og Reykjavík var þá í öðru sæti með 33.913 tonn.

Á yfirstandandi fiskveiðiári eru Vestmannaeyjar önnur stærsta heimahöfnin með rúm 35 þúsund tonn, sem er 10,9% hlutfall af heildarkvóta, og Grindavík í þriðja sæti með rúm 33.800 tonn, 10,5%. Aðrar hafnir eru ekki hálfdrættingar á þær þrjár kvótahæstu.

Þetta kemur fram á vef Fiskifrétta.

Nýjustu fréttir

VestExpo27 verður haldin í Goslokavikunni
Mótorarnir pantaðir en fjármögnun ótryggð
Framkvæmdir og ferjusigling – myndband
Svava Kristín til liðs við Eyjafréttir
Frá Vestmannaeyjum á borð neytenda í Kína
Kalla eftir sjónarmiðum um atvinnulíf í Eyjum
Gengu yfir Fimmvörðuháls í blíðskaparveðri
Kynntu ráðherra sérstöðu íslensks saltfisks í Portúgal
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.