Vestmannaeyjahöfn þarf að stækka. Hún þarf að geta tekið á móti stærri skipum og þjónustað þau með upplandi og viðeigandi innrigerð. Án stækkunar er hætt við að í nánustu framtíð verði staða hafnarinnar erfiðari en nú er. Þau áhrif munu teygja áhrif sín yfir til okkar öflu fyrirtækja og samfélagsins alls.
Vestmannaeyjahöfn er ein helsta verstöð hér á landi. Hún gegnir lykilstöðu í þjónustu fiskiskipaflotans allt árið um kring. Á seinustu árum hefur verið fjárfest fyrir gríðalegar fjárhæðir í vinnslufyrirtækjum og ljóst er að sóknarhugur útgerðarfyrirtækja er mikill. Ólíkt því sem víða hefur gerst hafa sjávarútvegsfyrirtækin í Vestmannaeyjum verið að styrkjast og geta þeirra til frekari vaxtar í nánustu framtíð er mikil. Þessi sterka staða verður þó ekki nýtt nema höfnin sjálf þróist með.
Höfnin okkar hefur þó víðtækara hlutverk en eingöngu að þjónusta fiskiskipaflotann. Hún er lífæð samfélagsins vegna hlutverks síns í samgöngum. Þá hefur staða hennar þegar kemur að móttöku skemmtiferðaskipa verið að aukast hratt á seinustu árum.
Veruleikinn er sá að Vestmannaeyjahöfn nálgast krossgötur. Flutningaskip eru að stækka og verði ekkert að gert má sjá ákveðnar líkur til þess að höfnin hér dragist aftur úr. Þetta verður samfélagið í Vestmannaeyjum að horfast í augu við og vinna útfrá.
Árangur í þessu verkefni kemur ekki af sjálfu sér. Það þarf þrek, þor og þekkingu á þörfum hafnsækinna fyrirtækja í þessari baráttu. Það ásamt sterkri framtíðarsýn mun ryðja braut til frekari vaxtar. Um allt land keppast hafnir nú við að aðlaga sig að breyttum veruleika og Vestmannaeyjar þurfa að taka þátt í því kapphlaupi.
Ég bið um stuðning Eyjamanna í komandi prófkjöri Sjálfstæðismanna og þar með um umboð til að berjast fyrir verkefnum sem þessu.
Jarl Sigurgeirsson frambjóðandi í prófkjöri Sjálfstæðisflokksins




















Skráðu þig á fáðu nýjustu tilkynningar fyrst
Ekki liggja fyrir nýjar mælingar
Hvað er sjóveiki?
Sjóveiki er misræmi milli skynfæra líkamans sem senda boð til heilans um hreyfingu – kyrrstöðu.
Þegar einstaklingur er úti á sjó þá nema skynjarar í vökvafylltum gangi í innra eyra hreyfingu og senda boð til heilans að einstaklingur sé á hreyfingu. Augun senda hins vegar boð til heilans um að viðkomandi sé kyrr. Heilinn á erfitt með að vinna úr þessum misvísandi og ósamræmdu upplýsingum og sendir skilaboð til magans um að tæma sig – þ.e. veldur uppköstum.
Einkenni sjóveiki eru þreyta, ógleði, svimi, svitakóf og uppköst.
Góð ráð til að hindra sjóveiki:
Lyf við sjóveiki þ.e. lyf sem slá á einkennin og fást án lyfseðils í apóteki.
Önnur ráð:
Hvar í skipinu er best að vera o.fl.
Þungun:
Þungaðar konur sem þjást af sjóveiki mega nota koffinátín í litlum skömmtum en best er að ráðfæra sig við lækni eða lyfjafræðing.
Þunguðum konum er ekki ráðlagt að nota engifer þar sem það er ekki staðfest hvort það geti haft skaðleg áhrif á fóstur.