Dagskráin heldur áfram
Vestmannaeyjahöfn.

Það á að vera takmark okkar Eyjamanna allra að minnast 100 ára afmælis Vestmannaeyja með veglegum hætti. Starfandi er afmælisnefnd á vegum bæjarins sem skipulagt hefur dagskrána í stærstum dráttum en svo eru að detta inn viðburðir sem á einn eða annan hátt tengjast afmælisárinu.

Dagskráin hófst strax á nýársdag með sýningu á safni Kjarvalsmynda í eigu Vestmannaeyja sem er með þeim stærstu á landinu. Síðan tók við hver dagskrárliðurinn af öðrum og áfram skal haldið.

Næsti stóri viðburðurinn er Kvikmyndahátíð í maí og svo verður hápunkturinn í byrjun júlí. Til að auðvelda fólki að fylgjast með því sem framundan er dagskrána að finna á áberandi stað á Eyjafjölmiðlunum. Auk þess á heimasíðu Vestmannaeyjabæjar, vestmannaeyjar.is og heimasíðu Safnahúss, safnahus.vestmannaeyjar.is.

Er þetta líka hugsað fyrir þá sem ætla að koma hingað og taka þátt í hátíðinni með okkur og Eyjafólki sem vilja skipuleggja frí og ferðalög með tilliti til hátíðarhaldanna.

Um leið og við hvetjum alla til að taka þátt í dagskránni viljum við benda á að allt um það sem þegar hefur farið fram er að finna á vestmannaeyjar.is og safnahus.vestmannaeyjar.is.

Dagskráin verður uppfærð jafnóðum og breytingar verða.

Nýjustu fréttir

Malbikað víða um bæ – myndasyrpa
Átta marka tap hjá ÍBV gegn Val
ÍBV tryggði sér þriðja sætið með sigri á Stjörnunni
Sjálfkeyrandi bílar í Eyjum – af hverju ekki?
Ofsaveður setti svip sinn á haustrall Breka
Malbik, hraun og list í Eyjum
Þak sett á afslátt Loftbrúar
Brattir þrátt fyrir bræluna
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.