Vestmannaeyjar fyrri tíma lifna við í Sagnheimum
Í reiptogi á Stakkagerðistúni. Ljósmynd/aðsend.

Þriðji þáttur sýningarraðarinnar “Vestmannaeyjar í gegnum linsu liðins tíma” verður sýndur laugardaginn 14. febrúar kl. 11.00–12.00 í Sagnheimum. Á undan verður sýnt stutt myndabrot, líkt og í fyrri tvö skiptin.

Þátturinn er afar fjölbreyttur og borið verður víða niður. Elsta efnið er frá árinu 1924 og í svarthvítu en meginefnið eru litmyndir frá árunum 1950–1970, segir í tilkynningu frá skipuleggjendum.

Meðal efnis má nefna úteyjarlíf, veiði í Súlnaskeri og „blússið gefið“ árið 1924, Sjómannadag á Stakkó 1953, sundlaugina við Miðhúsatún, grindhvalavaðu í höfninni 1958, sjóstangveiði um 1960, fótboltaleik á vellinum við Hástein, Surtseyjargosið, Stýrimannaskólann á Breiðabliki um 1970 og margt fleira áhugavert. Sýningin í heild sinni tekur um 60 mínútur.

Líkt og á fyrri sýningum mun Arnar Sigurmundsson greina nánar frá myndefninu og leiða umræður. Gunnar Júlíusson, grafískur hönnuður, yfirfór myndefnið og sá um úrvinnslu verkefnisins, sem hlaut styrk úr Uppbyggingarsjóði Suðurlands.

 

Nýjustu fréttir

Hagnaður Ísfélagsins 2,8 milljarðar króna
Heimir mætir með Írland í umspilsleik í kvöld
Minning: Einar Birgir Sigurjónsson
Grátlegt tap ÍBV gegn KA í tvíframlengdum leik
Vinna allt að 100 tonn á dag
Foreldrar hvattir til að fylgjast með í fyrramálið
Útgerðar- og fjölskyldusaga Þóru og Óskars á Leó
ÍBV vann Val í æfingaleik
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.