Vestmannaeyjar Open 2026 í pílukasti fór fram um helgina
Frá mótinu um helgina.

Vestmannaeyjar Open 2026 í pílukasti 2026 var haldið í Íþróttamiðstöð Vestmannaeyja dagana 14. og 15. ágúst. Um var að ræða opið mót og þurftu keppendur því ekki að vera skráðir í pílufélag til þess að taka þátt. 54 keppendur tóku þátt í heildina yfir allt mótið. 

Mótið hófst á föstudagskvöldið með tvímenningskeppni, svokölluðu ,,blind draw” þar sem dregið var blint í tvímenningnum. Óreyndir pílukastarar gátu þá reynst heppnir og endað með einhverjum af bestu pílukösturum landsins í liði. 42 keppendur tóku þátt í tvímenningnum. 

Sigurvegarar tvímennings voru þeir Guðvarður Finnur Helgason út Pílufélagi Reykjanesbæjar og Guðbergur Fanndal Kristinsson. 

Á laugardeginum var spilaður einmenningur og þar sem 48 keppendur sem tóku þátt. Spilað var í átta riðlum þar sem fjórir komust upp úr riðlunum og spiluðu í 32-manna úrslitum. 

Það voru Eyjamaðurinn Einar Gíslason og Kári Vagn Birkisson sem komust í úrslitaleikinn þar sem Einar hafði betur 6-4. 

Ágúst Gísli Helgason komst lengst frá Pílufélagi Vestmannaeyja. Hann féll úr leik eftir æsispennandi oddaleik gegn Kára Vagni Birkissyni í 8-manna úrslitum. 

Sigurvegari í kvennaflokki var Steinunn Dagný Ingvarsdóttir, frá Pílufélagi Grindavíkur.

Úrslit frá mótinu má sjá hér að neðan:

Karlaflokkur

  • Fyrsta sæti – Einar Gíslason – Pílufélag Kópavogs
  • Annað sæti – Kári Vagn Birkisson  – Pílufélag Kópavogs
  • Þriðja sæti – Alexander Veigar Þorvaldsson – Pílufélag Grindavíkur
  • Besti leggur – Alexander Veigar Þorvaldsson – 11 pílur
  • Flest 180 – Alexander Veigar Þorvaldsson – 7 stk
  • Hæsta útskot – Vitor Charrua (Pílufélag Reykjanesbæjar) – 156

 

Kvennaflokkur

  • Fyrsta sæti  – Steinunn Dagný Ingvarsdóttir. (Pílufélag Grindavíkur)
  • Annað sæti  –  Aðalheiður Sif Ágústsdóttir (Pílukastfélag Reykjavíkur)
  • Hæsta útskot  – Steinunn Dagný Ingvarsdóttir – 149
  • Besti leggur – Steinunn Dagný Ingvarsdóttir – 15 pílur

 

B úrslit

  • Fyrsta sæti – Þórólfur Sævar Sæmundsson – Pílufélag Selfoss
  • Annað sæti  – Sigurjón Hauksson – Pílukastfélag Reykjavíkur

 

 

Nýjustu fréttir

Vestmannaeyjar Open 2026 í pílukasti fór fram um helgina
ÍBV tapaði á heimavelli gegn ÍA
Hlynur Andrésson hljóp maraþon á EM í morgun
Aníta Óðinsdóttir – Tekur þátt í Reykjavíkurmaraþoninu í fyrsta sinn
Nýbyggingin við Tangagötu tekur á sig mynd
Mikilvæg stig í húfi hjá ÍBV á Hásteinsvelli
Íslandsmót golfklúbba í 2. deild karla hefst í Eyjum á morgun
Minna á lokanir við Viðlagafjöru
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.