“Þau ánægulegu tíðindi bárust áðan frá stjórnstöð að Vestmannaeyjastrengur 3 (VM3) sé kominn í rekstur,” þetta kemur fram í tilkynningu frá Landsneti. Margir hafa komið að verkefninu með einum eða öðrum hætti síðan upp kom bilun í strengnum í lok janúar við að koma strengnum í lag aftur. Viðgerðaskipið Henry P Lading hefur verið í Vestmannaeyjum frá því í byrjun júlí, en góðan veðurglugga þurfti í um fjóra daga til að ljúka tengivinnunni um borð í skipinu. Sá gluggi kom síðustu helgi og síðan á mánudag hafa verið að gera prófanir á strengnum.
“Við óskum Vestmannaeyingum til hamingju með áfangann og afhendingaröryggið og þökkum öllum þeim sem lögðu hönd á plóginn fyrir einstaklega gott samstarf í gegnum þetta stærsta viðgerðaverkefni Landsnets.”
Skráðu þig á fáðu nýjustu tilkynningar fyrst