Vestmanney á landleið með fullfermi

Ísfisktogarinn Vestmannaey VE er væntanlegur til heimahafnar í Vestmannaeyjum í dag um hálffjögur leytið. Frá þessu er greint á heimasíðu Síldarvinnslunnar. Skipið er með fullfermi en það landaði síðast sl. sunnudagskvöld. Heimasíðan ræddi við Egil Guðna Guðnason stýrimann og spurði fyrst hvar hefði verið veitt. „Við vorum við ingólfshöfðann og austur í Sláturhúsinu. Aflinn er að mestu ýsa og þorskur og svo er pínulítið af ufsa. Veðrið var afskaplega gott en þó vorum við í leiðinda suðvestan streng í gær. Það voru ábyggilega 12-15 metrar akkúrat þar sem við vorum að veiðum. Túrinn var tíðindalítill ef undan er skilið smá bras sem við lentum í. Við lentum í því að trollið vafðist upp hjá okkur og varð eins og kaðall. Þetta var afar sérstakt og enginn hér um borð hefur séð þetta gerast áður. Það tók talsverðan tíma að greiða úr þessu en það tókst farsællega,“ segir Egill Guðni.

Systurskip Vestmannaeyjar, Bergey VE, hélt til veiða í gær.

Nýjustu fréttir

Við höfum þurft að ryðja brautina
Eyjar liðins tíma lifna við – 2. þáttur
Vikan í Eyjum: Verklag bæjarins, hafnarmál og menningarlíf
Atli Steinn fór á kostum þegar ÍBV lagði Stjörnuna að velli
Sebastiano Caboto við dýpkun í Vestmannaeyjahöfn – uppfært
Norðurljósin settu svip á hrekkjavökuna í Eyjum
Engin fyrirheit um fjármögnun nýs dráttarbáts
Eyjamenn vilja fylgja eftir góðum útisigri
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.