Ásdís Steinunn Tómasdóttir, deildarstjóri á unglingastigi Grunnskóla Vestmannaeyja flutti ávarp við útskrift 10. bekkjar í Eldheimum fyrir hönd Einars Gunnarssonar í Eldheimum í síðustu viku. Í ræðu sinni lagði hún áherslu á að útskriftin markaði mikilvæg tímamót í lífi nemenda, foreldra og starfsfólks skólans. „Við fögnum saman lokum tíu ára skólagöngu þessa glæsilega hóps ungs fólks sem hér situr – reiðubúinn til að takast á við næsta kafla lífsins,“ sagði Ásdís.

Hún sagði árganginn hafa skarað fram úr á mörgum sviðum komið inn með fjölbreytta hæfileika, metnað og sköpunarkraft. „Við erum ótrúlega stolt af ykkur. Þegar ég lít yfir þennan hóp sé ég ekki bara 51 útskriftarnema heldur aragrúa af hæfileikum, eldmóði og sköpunarkrafti sem hefur einkennt þennan árgang.“
Hæfileika fólk
Á meðal útskriftarnema væru verðlaunaljóðskáld, tónlistarfólk, sigurvegarar í hönnunarkeppnum, nemendur í metnaðarfullu tónlistarnámi og einstaklingar sem hefðu verið valdir í landsliðshópa í íþróttum. „Þetta eru aðeins nokkur dæmi um kraftinn í þessum krökkum,“ sagði hún og bætti við að fjölbreytileikinn sýndi vel hversu margt byggi í hópnum.

Ásdís þakkaði foreldrum og forráðamönnum fyrir samstarfið í gegnum grunnskólaárin og minnti á mikilvægi stuðnings þeirra. „Enginn gengur í gegnum svona langan kafla án stuðnings og hér hefur samvinna okkar skipt sköpum.“
Hún færði einnig kennurum og starfsfólki skólans þakkir fyrir framlag sitt til menntunar og velferðar nemendanna. Taldi hún þau upp sem hlutu viðurkenningar fyrir skólasókn, framfarir, námsárangur, listir, íþróttir og lokaverkefni. Þá fengu nemendur viðurkenningar fyrir þátttöku í Íþróttaakademíu ÍBV og GRV og sérstakar viðurkenningar voru veittar fyrir framúrskarandi námsárangur og árangur í listum.

Einar Igarashi úr 10. ES lék á píanó fyrir gesti.
Í lokaorðum sínum hvatti Ásdís nemendur til að horfa bjartsýnir til framtíðar og treysta eigin dómgreind. „Framtíðin bíður og þið ráðið nú sjálf hvernig þið stígið næstu skref,“ sagði Ásdís og hvatti þau jafnframt til að halda áfram að afla sér þekkingar, sýna hugrekki og vera óhrædd við að feta nýjar slóðir. „Ég hvet ykkur til að halda áfram að læra, hlusta, efast og reyna. Verið hugrökk. Verið þið sjálf og gleymið ekki að vera forvitin.“
Að lokum sagðist hún sannfærð um að árgangurinn ætti bjarta framtíð fyrir sér. „Ég er sannfærð um að þið eigið eftir að koma bæði okkur og ykkur sjálfum á óvart, gera samfélag okkar betra og skapa ykkur framtíð sem skiptir máli.“
Að loknu ávarpinu var vitnisburðum og árbókum dreift og 51 nemandi útskrifaðist formlega úr 10. bekk Grunnskóla Vestmannaeyja.
Júlí Arna Sigurjónsdóttir úr 10. HJ flutti ávarp útskriftarnema og Einar Igarashi úr 10. ES lék á píanó fyrir gesti. „Glæsilegir fulltrúar árgangsins hér á ferð,“ sagði Ásdís.



Elísa Sigurðardóttir, stolt af sínu fólki.