Við ferðumst marg oft á ári með hinum ýmsu ferðamátum
�?skar �?rn �?lafsson, formaður knattspyrnuráðs birti eftirfarandi stöðu uppfærslu á facebook síðu sinni nú rétt í þessu.
�?g er ekki alveg að ná því hvað er svona merkilegt við það að ferðast til Vestmannaeyja með farþegabátnum Víking frekar en með öðrum leiðum. Leiknisliðið kom með þessu ágæta skipi til Eyja á miðvikudaginn og síðan hefur skapast mikil umræða um þetta ferðalag en við ferðumst marg oft á ári með hinum ýmsu ferðamátum og má þar nefna litlar flugvélar á bakka, Ernir, Eyjahopp, Herjólfur, Víkingur, Rib-safari og það hefur ekki þótt neitt mál hvað þá fréttaflutningur en leikir hafa ekki frestast vegna okkar í mörg ár. Við höfum brugðið á það ráð ef spáin er slæm að ferðast deginum áður og gista með tilheyrandi kostnaði.
Í mínum huga þurfti þetta aldrei að koma til ef forsvarsmenn Leiknis hefðu unnið vinnuna sína og hlustað á viðvaranir af hálfu ÍBV sem létu þá vita á þriðjudeginum 19. maí um hækkandi öldu og hugsanlega niðurfellingu á ferðum Herjólfs þann 20. maí. �?g skrifa þetta algjörlega á þá, ef þeir hefðu hlustað á okkur hefði leikurinn hafist klukkan 18:00 eins og upphaflega stóð til. �?g vona svo innilega að aðrir forsvarsmenn í Pepsi-deildinni sýni leikjum á Hásteinsvelli meiri virðingu og sjái til þess að lið þeirra séu mætt á réttum tíma. �?að er ekki í verkahring ÍBV að láta önnur lið vita með fyrirvara um það hvort Herjólfur fari hugsanlega ekki vegna ölduhæðar en auðvitað viljum við spila okkar leiki á réttum tíma og á réttum dögum. Við munum að sjálfsögðu láta menn vita áfram ef útlitið er ekki gott svo hægt sé að finna lausnir.
Að halda því fram að ÍBV hafi grætt á því að Leiknismenn ferðuðust á þennan máta er fráleitt. �?egar ákvörðun um seinkun á leiknum kemur eru 60 mínútur í leik og leikmenn ÍBV byrjaðir að gíra sig upp í leikinn en undirbúningur hófst 90 mínútum fyrir leik, síðan kemur ákvörðunin um að seinka leiknum um aðrar 45 mínútur en áður hafði leiknum verið seinkað um 30 mínútur og leikmennirnir þurfa að byrja aftur á byrjunarreit þar sem farið er eftir klukku í undirbúningnum. Sem sagt ekki góður undirbúningur hjá ÍBV fyrir þennan leik líkt og hjá Leikni. Eitt hefur þó gleymst í allri þessari umræðu er að besti leikmaður vallarins Ian Jeffs var samferða Leiknismönnum með Víkingi.
Leikurinn var skemmtilegur þrátt fyrir lélegan undirbúning og vil ég þakka Leiknismönnum og stuðningsmönnum þeirra fyrir hörkuskemmtilegan og góðan leik.

Nýjustu fréttir

Bæjarstjórn fundar í dag – bein útsending
Sjö ferðir Herjólfs falla niður vegna viðhalds
Herjólfur til Landeyjahafnar í dag og Þorlákshafnar á morgun
Þrjár ólögmætar uppsagnir kalla á skýr svör
Vinnslustöðin á erlendum vettvangi
„Vestmannaeyjar eru til fyrirmyndar“
Hljómey og Vestmannaeyjabær framlengja samstarfið
Loðnuráðgjöf lækkar úr 358 þúsund tonnum í tæp 106 þúsund
viðburðir
Atvinna
13. október 2026
17:15
Íbúaþing um atvinnustefnu í Eldheimum
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.