Á morgun, þriðjudag verður unnið að viðgerð um borð í Herjólfi. �?á mun Herjólfur sigla fyrstu tvær ferðirnar samkvæmt áætlun. Brottför frá Vestmannaeyjum klukkan 08:30 og 11:00 og frá Landeyjahöfn 09:45 og 12:30.
Vonast er til að viðgerð ljúki fyrir brottför Herjólfs seinnipartinn, ef það hefst ekki verður fyrsti kostur að seinka brottför úr Vestmannaeyjum 18:30 til 21:00 og brottför úr Landeyjahöfn 19:45 til 22:00.
Ef svo fer að viðgerð stendur enn yfir kl 21 annað kvöld þá þarf að fella niður kvöldferð Herjólfs á morgun.
�?ví viljum við benda farþegum okkar á að nýta sér fyrri ferðir dagsins ef þeir þurfa nauðsynlega að komast til/frá Vestmannaeyjum á morgun, þriðjudag.
Tilkynning um framvindu mála verður send út á morgun eftir klukkan 17:00.