Viðkvæmir taki vasaklútana með
�??Keppnistreyjan kom til landsins sama dag og landsliðstreyjan þannig við gátum ekki farið að stela þrumunni, við hefðum líklega orðið undir í þeirri keppni,�?? segir Gunnar Helgason, rithöfundur, um Fálkatreyjuna sem hann klæddist í tilefni þess að fjölskyldu- og íþróttakvikmyndin Víti í Vestmannaeyjum verður frumsýnd næstkomandi fimmtudag. Enn hann var í viðtali á K100 í gær, hægt er að hlusta á það hérna.
Heilmikil vinna er að baki kvikmyndinni en tíu ár eru liðin frá því að Gunnar byrjaði að skrifa bókina sem kvikmyndin er byggð á. �??�?etta byrjaði sem hugmynd að bók fyrir drengi sem eru hættir að lesa, ég á svona vandamál heima hjá mér, þannig að ég skrifaði fótboltabók til að halda drengjunum mínum að lestri,” segir Gunnar um bókina Víti í Vestmannaeyjum sem kom út árið 2011. �??Nú er þetta bara orðið bíó, þetta er alveg klikkað. Og þetta er ekkert smá bíó, Bragi �?ór Hinriksson leikstýrir þessu og við vorum sammála um það að þetta yrði að vera á stórmyndaskala,” segir hann og bætir við að efnistökin séu þannig að viðkvæmir ættu að taka vasaklútana með. �??Myndin er um vináttu og hvað það er að vera alvöru manneskja, það er það sem myndin er um í raun og veru, fótboltinn er bara bíllinn sem við notum á leiðinni.�??
Nýtt tölublað af Eyjafréttum kemur út á morgun og þar er viðtal við eyjapæjuna Ísey Heiðarsdóttir en hún er ein af aðalleikurum myndarinnar.

Nýjustu fréttir

Gengu yfir Fimmvörðuháls í blíðskaparveðri
Kynntu ráðherra sérstöðu íslensks saltfisks í Portúgal
Stytting Hörgaeyrargarðs færist nær
Jafntefli hjá Heimi og Írum gegn Ísrael
Fimm ferðir til Landeyjahafnar á mánudag – dýpkun að hefjast
Erlingur stýrði Minden til sigurs í sínum fyrsta leik
Lærdómur liðinnar viku
Herjólfur siglir eina ferð til Landeyjahafnar síðdegis
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.