Vegagerðin og Strandferðaskip í Færeyjum hafa átt í viðræðum um hvort mögulegt sé að samnýta Herjólf III með einhverjum hætti. Grunnforsenda samninga er að Herjólfur III sé aðgengilegur ef og þegar þörf reynist á og verði þannig áfram varaferja fyrir nýja Herjólf. Reikna má með að niðurstaða fáist í viðræðurnar á næstu mánuðum.
Strandfaraskip í Færeyjum, sem er rekstraraðili almenningssamgagna þar í landi, hefur sýnt áhuga á því að taka Herjólf III í sína þjónustu. Skipið er hugsað uppbótarskip vegna mikilla anna á ýmsum siglingarleiðum í Færeyjum. Skipið verður fullmannað og í reglubundinni notkun en ekki fast í áætlanasiglinum. Það þýðir að skipinu verður viðhaldið og áhöfn er til staðar og ferjan þá einungis í um sólarhrings fjarlægð frá Íslandi.
Eitt helsta verkefni Vegagerðarinnar er að tryggja öruggar samgöngur á skynsaman og hagkvæman hátt. Vestmannaeyjar eru háðir ferjusiglingum og hluti af því að búa við slíkar samgöngur er að geta reitt sig á varaleið þegar Herjólfur þarf að fara í reglubundið viðhald og ekki síður ef eitthvað óvænt kemur upp.
Eftir að nýi Herjólfur komst í fullan rekstur og reynslan hefur sýnt okkur að hann stenst allar væntingar um þjónustustig fyrir flutninga á fólki og farmi milli lands og eyja, hefur hlutverk Herjólfs III verið í talsverðri óvissu. Að liggja verkefnalaust við bryggju fer illa með skip og rekstur og viðhald við þær aðstæður mjög kostnaðarsamt.
Hugmyndir voru viðraðar um að Herjólfur III gæti siglt á milli Stykkishólms og Brjánslækjar en eftir ítarlega skoðun á því verkefni varð niðurstaðan sú að miðað við núverandi aðstæður (hafnarmannvirkin) hentar Herjólfur III engan veginn á þá siglingaleið.
Það er því áhugavert að sjá hvort samnýta megi skipið bæði í Færeyjum og á Íslandi.
Hvað er sjóveiki?
Sjóveiki er misræmi milli skynfæra líkamans sem senda boð til heilans um hreyfingu – kyrrstöðu.
Þegar einstaklingur er úti á sjó þá nema skynjarar í vökvafylltum gangi í innra eyra hreyfingu og senda boð til heilans að einstaklingur sé á hreyfingu. Augun senda hins vegar boð til heilans um að viðkomandi sé kyrr. Heilinn á erfitt með að vinna úr þessum misvísandi og ósamræmdu upplýsingum og sendir skilaboð til magans um að tæma sig – þ.e. veldur uppköstum.
Einkenni sjóveiki eru þreyta, ógleði, svimi, svitakóf og uppköst.
Góð ráð til að hindra sjóveiki:
Lyf við sjóveiki þ.e. lyf sem slá á einkennin og fást án lyfseðils í apóteki.
Önnur ráð:
Hvar í skipinu er best að vera o.fl.
Þungun:
Þungaðar konur sem þjást af sjóveiki mega nota koffinátín í litlum skömmtum en best er að ráðfæra sig við lækni eða lyfjafræðing.
Þunguðum konum er ekki ráðlagt að nota engifer þar sem það er ekki staðfest hvort það geti haft skaðleg áhrif á fóstur.