Vilja að hafinn verði undirbúningur að smíði nýrrar ferju
herjolf_bjarnarey
Herjólfur. Myndin er tekin þegar ferjan kom til landsins sumarið 2019. Eyjafréttir/Eyjar.net: Tryggvi Már Sæmundsson

Bæjarstjórn Vestmannaeyja samþykkti á síðasta fundi sínum sameiginlega bókun þar sem lögð er áhersla á að hafinn verði undirbúningur að smíði nýrrar Vestmannaeyjaferju. Segir í bókuninni að reynslan undanfarinna vikna hafi sýnt með skýrum hætti hversu mikilvægt sé að tryggja öryggi og stöðugleika í samgöngum við Eyjar.

Málið var tekið fyrir í kjölfar yfirferðar Írisar Róbertsdóttur bæjarstjóra á stöðu samgangna síðustu vikur. Hún fór meðal annars yfir stöðuna á Herjólfi III, framvindu viðgerða á Herjólfi IV og helstu atriði sem komu fram á fundi með fulltrúum Vegagerðarinnar og nýjum dýpkunarverktaka Landeyjahafnar, Jan de Nul.

Í sameiginlegri bókun bæjarstjórnar segir að þær aðstæður sem skapast hafi í ferjusamgöngum eftir bilun um borð í Herjólfi IV sýni ótvírætt mikilvægi þess að hefja undirbúning að smíði nýrrar ferju.

Jafnframt segir að nauðsynlegt sé að hægt verði að halda uppi eðlilegum samgöngum við Vestmannaeyjar sem anna þörfum samfélagsins, án þess að það komi niður á samgöngum annarra landshluta.

Nýjustu fréttir

Fjaran afhjúpar gamla leyndardóma
Skólastarf hefst á ný í GRV
Höfum kjark til að horfa á staðreyndir
Sindri Georgsson – Fátt sem toppar utanvegahlaup í Eyjum
Fjórði stærsti júlímánuður í sögu Herjólfs
Karlasveit GV leikur í deild þeirra bestu að ári
Mikið siglt og víða leitað eftir afla
Skólastarf að hefjast á ný í FÍV
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.