Vilja lengja Kleifakant og hafnarkant í Gjábakkafjöru

Breytt aðalskipulag Vestmannaeyja og nýir reitir fyrir hafnarsvæði voru til umræðu á fundi Umhverfis- og skipulagsráðs í vikunni. Á 296 fundi Framkvæmda- og hafnarráðs var samþykkt tillaga hafnarstjóra um að samhliða aðalskipulagsbreytingu vegna Hörgaeyrargarðs verði farið í aðalskipulagsbreytingu sem snýr að lengingu á Kleifakanti í austur og hafnarkant í Gjábakkafjöru.

Tillagan felur í sér að ferli aðalskipulagsbreytingar vegna styttingar Hörgaeyrargarðs verði hafið að nýju með viðbættum forsendum varðandi nýja landnotkunarreiti fyrir hafnarstarfsemi.

Málinu er vísað til umsagnar Umhverfis- og skipulagsráðs.

Ráðið samþykkir  í niðurstöðu sinni að hefja vinnu við breytingar á Aðalskipulagi Vestmannaeyja 2015-2035 sem gerir ráð fyrir styttingu Hörgaeyrargarðs og nýrra reita fyrir hafnarsvæði.

Gildandi aðalskipulag – landnotkunarreitir hafnarsvæðis.pdf
Tillaga að nýjum landnotkunarreitum fyrir hafnarsvæði.pdf

 

Nýjustu fréttir

Yfir þúsund pysjur skráðar
Fjölmenni á opnum fundi Áfram Ísland
Kvennalið ÍBV sigraði alla sína leiki á Ragnarsmótinu
Styður lengri útivistartíma 10–12 ára barna
Þyrlupallurinn í Surtsey stækkaður
ÍBV tapaði gegn Þrótti R. á Hásteinsvelli
Stefnt að styttingu Hörgaeyrargarðs í lok september
Livey tekur við streymi Olísdeildarinnar
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.