Vilja öflugri dráttarbát og aðkomu ríkisins að fjármögnun
Lóðsinn - TMS
Lóðsinn í Vestmannaeyjahöfn. Eyjafréttir/TMS

Framkvæmda- og hafnarráð Vestmannaeyja telur mikla þörf á öflugri dráttarbát fyrir Vestmannaeyjahöfn vegna stærri skipa. Ráðið hefur falið hafnarstjóra að kanna leiðir til að tryggja höfninni öflugan og vel búinn bát og leita eftir samstarfi og mögulegri fjármögnun ríkisvaldsins.

Málið var tekið fyrir á fundi ráðsins 30. september. Þar fór hafnarstjóri yfir þörfina fyrir öflugri dráttarbát en Lóðsinn, sem tekinn var í notkun árið 1998 og hefur þjónað höfninni í tæpa þrjá áratugi.

Samkvæmt mati starfsmanna Vestmannaeyjahafnar þarf nýr bátur meðal annars að hafa betri stjórnhæfni, meiri dráttargetu og öflugra spil. Þá er lögð áhersla á 360 gráðu útsýni úr brú og að öllum búnaði verði stjórnað frá einum punkti.

Mikilvægt skref í uppbyggingu hafnarinnar

Í bókun ráðsins kemur fram að öflugri dráttargeta sé eðlilegt og mikilvægt næsta skref í uppbyggingu hafnarinnar, samhliða fyrirhugaðri styttingu Hörgeyragarðs. Markmiðið sé að auka öryggi og skapa betri forsendur fyrir öruggum og tíðari skipakomum.

Ráðið telur mikilvægt að leita til ríkisvaldsins um aðkomu að fjármögnun fjárfestingarinnar. Öflugur dráttarbátur myndi gegna mikilvægu hlutverki við þjónustu hafnarinnar, en jafnframt geta nýst sem fyrsta viðbragð við suðurströnd landsins og í stærri verkefnum á sunnanverðu landinu.

Hafnarstjóra hefur verið falið að kanna áfram mögulegar leiðir og leita eftir samstarfi og fjármögnun ríkisvaldsins. Ráðið óskar einnig eftir aðkomu bæjarráðs og bæjarstjóra að málinu.

Nýjustu fréttir

Tekjur á íbúa næstlægstar en afkoma meðal þeirra bestu
Handknattleiksdeild ÍBV með saltfisksölu í dag
Bókasafnið komið í hrekkjavökubúning
Bleikur blær og ABBA-tónar hjá Krabbavörn
Nýjar upplýsingar vörðuðu forsendur verðfyrirspurnarinnar
Eyjamenn geta haft úrslitaáhrif á fallbaráttuna
Malbikað víða um bæ – myndasyrpa
Átta marka tap hjá ÍBV gegn Val
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.