Vilja reisa raðhús í Foldahrauni
Svæðið sem sótt er um fyrir raðhúsa lengjurnar tvær.

Mikið hefur verið rætt um hugsanleg raðhús í Áshamrinum. En það var ekki eina umsóknin um byggingu raðhúsa sem tekin var fyrir á fundi umhverfis- og skipulagsráð í vikunni.

Fyrir ráðinu lá einnig erindi frá Masala ehf. En þar sækir Ragnar Már Svansson Michelsen fh. lóðarhafa Foldahraun 9-13 sem og 14-18, um leyfi til að byggja tvö fimm íbúða raðhús á einni hæð með innbyggðum bílgeymslum.

Skipulagsráð leggur til við bæjarstjórn að innsend gögn verði grenndarkynnt skv. 1. mgr. 44. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 og vísaði málinu til afgreiðslu bæjarstjórnar.

Það er því ljóst að framboðið á raðhúsaeignum er að stóraukast í Vestmannaeyjum. En þær hafa jafnan verið mjög eftirsóttar.

Nýjustu fréttir

Eyjasamfélagið heillaði mig strax
Milan Tomic framlengir við ÍBV
Dreymir um að verða lögreglumaður
Þarf kjark til að fara á karlaráðstefnu?
Hákon hlakkar mest til að læra sund
Trúfesti Guðs rauði þráðurinn í 100 ára sögu
Binni Þór gerir tveggja ára samning við ÍBV
Mikill spenningur fyrir komandi tímabili
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.