Vilja setja aldursmörk á samfélagsmiðla – ábyrgðin yrði hjá foreldrum
Í frumvarpsdrögum sem nú eru til umsagnar er lagt til að börn fái rétt til sjálfstæðs aðgangs að samfélagsmiðlum á árinu sem þau verða 15 ára. Mynd/Stjórnarráðið.

Mennta- og barnamálaráðuneytið hefur birt drög að frumvarpi sem myndi takmarka aðgang barna að samfélagsmiðlum. Samkvæmt tillögunni fengi barn rétt til sjálfstæðs aðgangs á árinu sem það verður 15 ára. Drögin eru nú til umsagnar og hafa ekki orðið að lögum.

Markmið tillögunnar er að vernda börn í stafrænu umhverfi og draga úr mögulegum skaðlegum áhrifum samfélagsmiðla á líðan, þroska og öryggi þeirra, að því er fram kemur í tilkynningu ráðuneytisins.

Athygli vekur að frumvarpsdrögin leggja skyldur á foreldra og forsjáraðila vegna aðgangs barna að samfélagsmiðlum, en ekki á fyrirtækin sem reka miðlana. Verði frumvarpið að lögum yrði það því á ábyrgð foreldra og forsjáraðila að fylgja aldursmörkunum eftir.

Tillagan hefur verið birt í Samráðsgátt stjórnvalda, þar sem hægt er að senda inn umsögn. Hún er enn á frumstigi og á eftir að fara í gegnum frekari meðferð áður en ljóst verður hvort eða í hvaða mynd aldursmörkin taka gildi.

Nýjustu fréttir

Bæjarstjórn gagnrýnir boðaðan niðurskurð til Herjólfs
ÍBV vann öruggan sigur á Stjörnunni – Sandra fór á kostum
Heimir Hallgrímsson heldur varnarnámskeið í Eyjum í desember
Vestmannaeyjabær leggur sex milljónir í hlutafjáraukningu í Eyjagöngum
Skálað og skrafað í Miðstöðinni – myndir
Eyjakonur vilja halda í við topplið Hauka
Glæsileg söngveisla þriggja kóra í Eyjum
Þoka hér en ekki þar
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.