Hagsmunaaðilar í Vestmannaeyjum hafa sent Ögmundi Jónassyni, samgönguráðherra bréf vegna fyrirhugaðs útboðs á rekstri Herjólfs. Í bréfinu eru settar fram kröfur um ferðir skipsins, að sérstök kvöldferð verði farin um miðnætti og að gert verði ráð fyrir rýmri siglingatíma yfir sumarið. Þá er þess krafist að gámaflutningar hafi ekki forgang í nokkrum ferðum dagsins. Bréfið í heild má lesa hér að neðan.