Viljayfirlýsing um rekstur nýrrar Vestmannaeyjaferju
Eins og komið hefur fram hefur Jón Gunnarsson samgönguráðherra fyrir hönd ríkisins og Elliði
Vignisson bæjarstjóri fyrir hönd Vestmannaeyjabæjar stýrt viðræðum þar sem kannaðar hafa verið
forsendur fyrir því að Vestmannaeyjabær taki að sér rekstur nýrrar Vestmannaeyjaferju þegar hún
hefur þjónustu um mitt ár 2018.
Á grunni þessara viðræðna og einlægs vilja til að bæta samgöngur milli lands og Eyja hefur nú verið
skrifað undir viljayfirlýsingu um að stefnt sé að gerð og undirritun samnings þar að lútandi sem verði
lokið eigi síðar en þann. 1. desember 2017.
Í viljayfirlýsingunni eru talin upp helstu markmið samningsins og forsendur hans. Meðal þess sem þar
kemur fram er að:
�?� skipið verði nýtt til siglinga milli Vestmannaeyja og Landeyjahafnar lengur hvern sólarhring
en nú er og gangi allt að 8 ferðir á dag í reglulegri áætlun þegar aðstæður krefjast.
�?� núverandi Herjólfur verði til reiðu sem varaskip fyrir ferjusiglingar í landinu eftir að ný ferja
hefur siglingar.
�?� sama gjaldskrá gildi á báðum siglingaleiðum.
�?� núverandi fjárveiting til reksturs Herjólfs verði lögð til grundvallar nýs samnings. �?annig
verði möguleg hagræðing vegna rekstrar nýrrar Vestmannaeyjaferju, nýtt til að bæta
samgöngur á milli lands og Eyja.
�?� fram fari þarfagreining á þjónustuþörf skipsins. �?arfagreiningin taki mið af þörfum
samfélagins en ekki eingöngu hámarksnýtingu.
�?� rekstur ferjusiglinga milli lands og Eyja sé almannaþjónusta og ekki hagnaðardrifin.
�?� rekstrarhagræðis verði gætt til hins ítrasta. Telji aðilar líklegt að útboð á almennum markaði leiði til aukins hagræðis samhliða þjónustuaukningu, verði Vestmannaeyjabæ það heimilt.
Með ofangreint að leiðarljósi stefna aðilar viljayfirlýsingar þessarar að því að Vestmannaeyjar verði
samkeppnishæfari varðandi íbúaþróun, atvinnuuppbyggingu og atvinnurekstur fyrirtækja sem þar
starfa.
Jón Gunnarsson og Elliði Vignisson

Nýjustu fréttir

Stór viðbygging við Íþróttamiðstöðina í útboð
Páskafundur í safnaðarheimili Landakirkju
ÍBV semur við leikmann frá Portúgal
Tengdadæturnar  Sigurlaug, Emma og Inga létu til sín taka
Frábær skráning á sundnámskeið á vegum Vestmannaeyjabæjar
Framleging á flugi samþykkt fram í miðjan apríl
Aleksandar Linta nýr þjálfari Eyjamanna 
Ágúst Gísli kom, sá og sigraði

Góð ráð fyrir siglingu

Sjóveiki

Hvað er sjóveiki?

Sjóveiki er misræmi milli skynfæra líkamans sem senda boð til heilans um hreyfingu – kyrrstöðu.

Þegar einstaklingur er úti á sjó þá nema skynjarar í vökvafylltum gangi í innra eyra hreyfingu og senda boð til heilans að einstaklingur sé á hreyfingu. Augun senda hins vegar boð til heilans um að viðkomandi sé kyrr. Heilinn á erfitt með að vinna úr þessum misvísandi og ósamræmdu upplýsingum og sendir skilaboð til magans um að tæma sig – þ.e. veldur uppköstum.

Einkenni sjóveiki eru þreyta, ógleði, svimi, svitakóf og uppköst.

Góð ráð til að hindra sjóveiki:

  • Góð hvíld daginn fyrir brottför. Að fara seint að sofa og snemma um borð í bát fer ekki vel saman ef fólk er hætt við sjóveiki.
  • Forðist áfenga drykki daginn fyrir brottför
  • Forðist djúpsteiktan, brasaðan eða saltan mat daginn fyrir siglingu.
  • Borðið góðan morgunverð. Borðið gjarnan hvítt brauð, hafragraut og ávexti þó ekki sítrus ávexti.
  • Forðist mikið koffein. Mikið kaffi er ekki það sem maganum líkar fyrir sjóferð.
  • Hafðu mat með þér á sjó. Gott er að hafa samlokur með kjúklingi eða kalkún. Kjötið er fitusnautt og brauðið er róandi í maga. Hafðu endilega eitthvað til að grípa í sem er létt í maga. Bananar eru mjög góðir til að narta í ef þú finnur fyrir ógleði en einnig er gott að hafa létt kex eða annað sem er ekki salt eða fitumikið.
  • Drekkið vel af vatni en einnig er gott er að drekka kóla drykki eða engiferöl í sjóferðinni

Lyf við sjóveiki þ.e. lyf sem slá á einkennin og fást án lyfseðils í apóteki.

  • Koffínátín – fæst án lyfseðils
  • Postafen – fæst án lyfseðils
  • Scopolamin plástur – lyfseðilsskyltEinnig má fá armbönd gegn ferðaveiki sem sumir telja að hjálpi.

Önnur ráð:

  • Engifer er jurt sem nýlega hefur fengið aukna athygli vegna þess að því er haldið fram að hún geti slegið á ógleði sem fylgir sjóveiki. Til forna tuggðu kínverskir sjómenn engiferrót til að draga úr sjóveiki. Flest lyf sem virka á ógleði verka á heilann en engifer virkar aðeins á magann. Ráðlagt er að taka 1000 mg. hylki hálftíma fyrir brottför. Einnig má taka eitt eða tvö 500 mg. hylki sem eru til viðbótar á ferðalaginu. Ekki er ráðlagt að drekka coke með engifertöflum.
  • Piparminta og te eru einnig gömul húsráð við ferðaveiki.
  • Sumum finnst betra að taka sýrujafnandi töflur, Alminox eða slíkt áður en þú heldur á sjó og þá er gott að hafa box með út á sjó.

Hvar í skipinu er best að vera o.fl.

  • Minna finnst fyrir hreyfingu og veltingi ef maður er staddur næst miðju bátsins.
  • Mörgum finnst gott að vera í kulda, t.d.að vera úti á dekki og láta vindinn leika um sig.
  • Matarlykt fer illa í þá sem hætt er við sjóveiki og einnig pústið frá bátnum.

Þungun:

Þungaðar konur sem þjást af sjóveiki mega nota koffinátín í litlum skömmtum en best er að ráðfæra sig við lækni eða lyfjafræðing.
Þunguðum konum er ekki ráðlagt að nota engifer þar sem það er ekki staðfest hvort það geti haft skaðleg áhrif á fóstur.

Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.