Vilmar nýr framkvæmdastjóri handknattleiksdeildar

Vilmar Þór Bjarnason hefur verið ráðinn framkvæmdastjóri handknattleiksdeildar ÍBV.

Vilmar þarf varla að kynna fyrir stuðningsmönnum og leikmönnum félagsins enda hefur hann verið mjög virkur í kringum starf deildarinnar undanfarin ár. Hann hefur verið kynnir á flestum leikjum í handboltanum og verið í handknattleiksráði síðustu þrjú tímabil. Vilmar hefur verið starfsmaður hjá Tryggingamiðstöðinni undanfarin 7 ár.

ÍBV vill þakka Viktori Hólm Jónmundssyni fyrir frábær störf síðustu fjögur ár og óskum við honum alls hins besta á nýjum vettvangi.

Fréttatilkynning

Nýjustu fréttir

Ísland vann stórsigur á Úkraínu í undankeppni EM
Blásið til hausttónleika
Leggja til aukaferju með Herjólfi á sumrin
Hörgeyrargarður og ábyrgð okkar gagnvart framtíðinni
Elliði Snær og félagar mæta Úkraínu í kvöld
Bæjarstjórn fundar í dag – bein útsending
Kvöldopnun með afsláttum og uppákomum
Erfitt vor en sterkt sumar hjá Herjólfi
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.